Auglýsing

Landsmótið í TrackMan golfhermum hefur notið vinsælda hjá kylfingum víðsvegar um landið og framundan er spennandi keppni. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki. Tvær undankeppnir fara fram áður en leikið verður til úrslita um Landsmeistaratitilinn í lok apríl.

Fyrri undankeppni fer fram 12. febrúar til 17. mars og komast 48 efstu karlar og 24 efstu konur í seinni undankeppnina sem haldin verður 18. mars til 21. apríl 2024. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram. 

Hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta. Stillingar mótsins tryggja að vallaraðstæður séu eins hvar sem leikið er. 

Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komast í úrslitakeppnina, Landsmótið, sem haldið verður 28. apríl 2024 í Íþróttamiðstöð GKG. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram gilda seinni 9, síðan seinustu 6, loks seinustu 3 og svo 1. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti. 

Skor úr undankeppnum fylgja ekki yfir í úrslitakeppnina. 

Leiknar eru 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum. 

Ef leikmenn eru að jafnir í efsta sæti skal leikinn bráðabani þangað til úrslit nást. Ekki skal leikinn bráðabani ef jafnt er í öðrum sætum. 

Vallaruppsetning 

Undankeppnir og úrslit eru leiknar á TrackMan Virtual Golf2 GR Korpunni Sjórinn-Áin. 

Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir eru stilltar á mestu mýkt en flatir eru harðar með miðlungs hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra. 

Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki og bláum í kvennaflokki. 

Sérregla 

Í þeim tilvikum sem TrackMan bætir við höggi vegna tæknilegra orsaka (t.d. ef hermir telur högg þó um æfingasveiflu sé að ræða), þá er heimilt að velja mulligan og endurtaka höggið. Kerfið skráir að leikmaður hafi tekið mulligan, og mun mótsstjórn skoða þau tilfelli sem slíkt er valið. Ef leikmaður hefur valið mulligan án þess að hafa gilda ástæðu til þess, fær viðkomandi frávísun úr mótinu. 

Mótsstjórn mun skera úr um öll tæknileg tilfelli sem koma upp meðan á leik stendur. 

Þátttökuréttur og skráning 

Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt. 

Skráningarferill í fyrri undankeppni: 


Skráning fer fram í tölvupósti á ulfar@gkg.is en í framhaldinu fær kylfingur boð í mótið og getur hafið leik.

Í undankeppnum greiða þátttakendur fyrir notkun á hermi þar sem það á við. Ekkert aukagjald er tekið fyrir þátttökuna í mótinu. 

Verðlaun eftir úrslitakeppni 27. apríl: 

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar. 

1. sæti: 130.000 kr. 

2. sæti: 50.000 kr. 

3. sæti: 30.000 kr. 

Mótsstjórn 

Úlfar Jónsson, Sigmundur Einar Másson, Brynjar Geirsson. 

Hafið samband við Úlfar ulfar@gkg.is ef spurningar vakna. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ