/

Deildu:

Auglýsing

Golfþing 2021 fer fram dagana 19.-20. nóvember n.k. á Fosshótelinu í Reykjavík.

Alls hafa 11 aðilar tilkynnt um framboð til stjórnarkjörs. Stjórn Golfsambandsins skal samkvæmt lögum GSÍ skipuð 11 mönnum. Hulda Bjarnadóttir býður sig fram í embætti forseta, en ekkert mótframboð barst, og er hún því sjálfkjörin sem og aðrir stjórnarmenn.


Eftirtaldir bjóða sig fram til stjórnar GSÍ á golfþinginu 2021.

Birgir Leifur Hafþórsson

Birgir Leifur Hafþórsson.

Ég, Birgir Leifur Hafþórsson hef áhuga á að gefa kost á mér í stjórn Golfsambands Íslands á komandi golfþingi.

Ég hef mikinn metnað fyrir golfíþróttinni og vil ég halda áfram að gefa af mér til golfhreyfingarinnar. Ástæða þess að ég sækist eftir að sitja í stjórn Golfsambands Íslands er fyrst og fremst ástríða mín fyrir golfíþróttinni sem er mér kær, enda hefur hún verið stór partur af lífi mínu síðustu 33 ár.

Ég hef komið að golfíþróttinni frá mörgum hliðum. Fyrst sem áhugamaður, keppnismaður í landsliði Íslands, keppnismaður í atvinnumennsku, þjálfari, aðstoðar landsliðsþjálfari, íþróttastjóri GL, markaðs- og viðburðastjóri GKG, formaður PGA og einnig sem foreldri barna sem hafa æft golf.

Ég hef setið í fjölda nefnda innan GKG, GSÍ og PGA á Íslandi, má sem dæmi nefna Íslandsmótsnefnd GKG, vallarnefnd, stefnumótunarnefnd fyrir íþróttastarf GKG, stjórn PGA á Íslandi (2 ár sem formaður) og sit núna í afreksnefnd GSÍ. Ég hef barist fyrir bættri æfingaraðstöðu fyrir alla kylfinga og tók þátt í uppbyggingu íþróttarmiðstöðvar GKG. Ég er afar stoltur af því að hafa tekið þátt í þeirri vinnu sem stjórn GKG og við starfsmenn skiluðum af okkur.

Ég heillaðist af golfi 12 ára gamall og hef stundað hana síðan. Ég er menntaður PGA kennari og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Í dag starfa ég hjá ACRO Verðbréfum við eignastýringu. Ég veit að sú reynsla sem ég bý yfir innan vallar og utan komi til með að nýtast golfhreyfingunni til framtíðar.

Ég er mikill keppnismaður og hef metnað til þess að gera betur í dag en í gær. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að styrkja enn frekar ímynd GSÍ ásamt því að vinna að þeim fjölmörgu verkefnum sem framundan eru hjá GSÍ.

Hansína Þorkelsdóttir

Hansína Þorkelsdóttir.

Ég býð mig fram í stjórn Golfsambands Íslands til næstu tveggja ára. Ég hef setið í stjórn GSÍ frá árinu 2015 og fór fyrir Útbreiðslunefnd í fjögur ár en síðastliðin tvö ár hef ég farið fyrir Tölvunefnd GSÍ.

Í Útbreiðslunefnd unnum við að framgangi og útbreiðslu golfíþróttarinnar með því að sinna kynningar- og markaðsmálum, þátttöku í verkefnum og viðburðum sem styðja við markmið um fjölgun kylfinga og gegn brottfalli úr hreyfingunni.

Síðastliðin tvö ár hefur innleiðing á Golfbox, nýju tölvukerfi golfhreyfingarinnar, tekist vel og almenn ánægja með kerfið. Tölvunefnd GSÍ hefur unnið að innleiðingunni en sér tækifæri til þróunar og frekari umbóta. Golfsambandið beitir sér fyrir því að koma ákveðnum umbótaverkefnum á framfæri.

Staða golfs á Íslandi er góð, en mikilvægt er að nýta tækifærin sem bjóðast til að gera enn betur. Aldrei hafa kylfingar verið fleiri og hefur jákvæð umræða um golf aukist á Íslandi undanfarin ár. Tölvunefnd hefur hafið umræðuna um hvernig við getum komið að frekari tækniþróun í þágu golfhreyfingarinnar en það þarf sameiginlegt átak hreyfingarinnar allrar í þeim verkefnum. Að mínu mati gæti golfsambandið komið á þessum samráðsvettvangi.

Í 17 ár hef ég leikið golf af ástríðu sem meðlimur í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Golfklúbbi Borgarness. Ég er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hef lokið meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef reynslu af ýmsum stafrænum umbreytingarverkefnum og starfa í dag sem þjónustustjóri hjá Opnum Kerfum hf. Ég er tilbúin að bjóða krafta mína áfram og tel að ég geti nýtt mína reynslu í þágu golfhreyfingarinnar.


Hjördís Björnsdóttir

Hjördís Björnsdóttir.

Hjördís Björnsdóttir heiti ég og er frá Úthlíð í Bláskógabyggð. Ég býð mig fram til stjórnar Golfsambands Íslands.

Ég er félagi í Golfklúbbnum í Úthlíð og Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég hef leikið golf í 25 ár en helsti styrkleiki minn er að ég er með lága forgjöf í því að kynna þessa frábæru íþrótt fyrir vinum og félögum. Ég er óhrædd við að tjá mig og kynna málefni golfíþróttarinnar. Ég hef mikla reynslu af markaðsmálum og komið að vinnu í markaðsdeildum nokkurra stórra fyrirtækja á Íslandi.

Á undanförnum árum hef ég tekið virkan þátt í uppbyggingu GÚ og komið mikið að mótahaldi á Úthlíðarvelli. Ég var á meðal þeirra sem settu golfklúbb Íslandsbanka, GOSÍ, á laggirnar ásamt samstarfsfélögum mínum á þeim tíma. Mín nálgun á golfið er að njóta og hafa gaman, fagna öllum höggum sem heppnast og gleðigolf heillar mig mest.

Ég er framkvæmdastjóri og eigandi að litlu fjölskyldufyrirtæki á landsbyggðinni sem rekur meðal annars Golfvöllinn í Úthlíð – en þar erum við búsett.

Ég sendi góðar kveðjur á golfþingið – en ég get því miður ekki tekið þátt á þinginu þar sem ég er í golfferð á La Gomera.


Hulda Bjarnadóttir

Framboð í embætti forseta Golfsambands Íslands.

Áherslur

Stefna sambandsins, sem gildir til ársins 2027 verður leiðarljós mitt fram á við og ég hef mikinn áhuga á að fylgja eftir þeirri metnaðarfullu vinnu sem hafin er og tryggja innleiðingu og öflugt samtal við golfhreyfinguna og haghafa. Ég vil vinna að því að GSÍ veiti golfklúbbunum framúrskarandi þjónustu og að sambandið sé vettvangur góðra samskipta og öflugrar ákvarðanatöku.

Hulda Bjarnadóttir.

Í mótahaldi mun ég styðja við stöðugar bætingar við framkvæmd Íslandsmóta í golfi líkt og kveðið er á um í stefnunni. Í afreksmálum er mikilvægt að halda áfram að bæta í og hlúa að okkar bestu kylfingum. Þetta eru okkar helstu fyrirmyndir og árangur þeirra á erlendum vettvangi er ein forsenda fyrir nýliðun meðal ungra kylfinga og umfjöllun um íþróttina eykst samhliða árangrinum.

Almennt þurfum við að tryggja nýliðun í íþróttinni og getur samstarf PGA og GSÍ verið lykill að farsælli nýliðun auk útbreiðsluhugmynda frá golfklúbbum og félagsmönnum til umræðu og úrvinnslu og vil ég að lýðheilsa verði sett á oddinn.

Einnig vil ég vera framsækin í samfélagslega ábyrgri hugsun og leiða áfram fjölþætta árvekni- og verkefnavinnu með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Það mun leiða af sér mælanleg markmið og sýna fram á þau jákvæðu áhrif sem golfhreyfingin stendur fyrir. Þannig tel ég okkur geta leitt farsælt samtal og samvinnu við ÍSÍ, ríki og sveitafélög.

Á persónulegum nótum

Ég er meðlimur í Nesklúbbnum og golf hefur verið fjölskylduíþrótt okkar í nær tuttugu ár. Ég hef persónulega reynslu af Íslandsmótum golfklúbba og ég hef verið mjög virk í öllu starfi klúbbsins.

Síðustu fjögur árin hef ég setið í stjórn GSÍ og hin síðari ár borið ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum sambandsins. Ég hef reynslu af stjórnarsetu í fyrirtækjum og íþróttafélagi. Áður en ég tók sæti í stjórn GSÍ var ég í aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Fram en ég hef verið viðriðin íþróttir frá unga aldri þar sem ég m.a. keppti fyrir Íslands hönd í yngri landsliðum í handbolta.

Kynningar og kostunarmál afrekskylfinga hef ég einnig gefið gaum í gegnum tíðina. Vegna fyrri starfa kom ég að framkvæmd golfmóta hérlendis og erlendis. Þannig kynntist ég þeirra vegferð á bakvið tjöldin og árið 2016 stóð ég ásamt góðum samstarfsaðilum fyrir komu Anniku Sörenstam til landsins. Það verkefni miðaði meðal annars við að styðja við valdeflingu ungra kylfinga.

Samhliða störfum mínum fyrir Golfsambandið vinn ég á Alþjóðasviði Marel þar sem ég vinn með stjórnendaþjálfun, vinnustaðamenningu og innri samskipti.


Hörður Geirsson

Hörður Geirsson.

Ég heiti Hörður Geirsson og býð mig fram til stjórnar GSÍ.

Ég er fisktæknir og tölvunarfræðingur að mennt og starfa í eigin fyrirtæki í Kópavogi. Ég hef verið félagi í Golfklúbbnum Keili í áratugi, enda lengst af ævinnar búið í göngufæri frá Hvaleyrarvelli.

Auk þess að hafa sinnt dómgæslu og mótsstjórnarvinnu í mörg ár fyrir Keili og GSÍ hef ég setið í dómaranefnd GSÍ og tekið þar þátt í að auka verulega kennslu nýrra golfdómara, bæði á héraðsdómara- og landsdómaranámskeiðum.

Eftir að hafa verið kosinn í stjórn GSÍ á Golfþingi 2017 tók ég að mér formennsku mótanefndar GSÍ og sinnti því þar til núverandi stjórn var kjörin árið 2019. Síðan þá hef ég gegnt embætti varaforseta. Innan stjórnarinnar hef ég sömuleiðis setið í fjárhagsnefnd og laganefnd, en starf laganefndar snýst að miklu leyti um viðhald og endurnýjun reglugerða í tengslum við mótahald GSÍ.

Árin 2017-2021 sat ég sem fulltrúi Evrópska golfsambandsins (EGA) í reglunefnd R&A í Skotlandi og fékk þar ómetanlega innsýn í þá miklu vinnu sem lögð er í gerð og viðhald golfreglnanna, ekki síst þar sem mikil uppstokkun varð á reglunum árið 2019.

Nú sit ég í mótanefnd EGA, sem sér um skipulagningu og framkvæmd Evrópumóta áhugamanna í golfi. Það rímar vel við að í seinni tíð hefur áhugi minn beinst æ meira að almennum undirbúningi og framkvæmd golfmóta.

Sú reynsla sem ég hef öðlast af þessum störfum fyllir mig trú um að ég geti orðið að gagni fyrir golfhreyfinguna með setu í stjórn GSÍ.

Í vinnu minni fyrir GSÍ hef ég reynt að halda íþróttaáherslum golfsins á lofti. Ég tel það mjög mikilvægt, hvort sem horft er til þroska og þróunar afrekskylfinga, samskipta golfklúbba við ríki og sveitarfélög eða þeirra fyrirmynda sem börn og unglingar þurfa að hafa til að laðast að golfinu. Mikilvægur þáttur í þessu er að GSÍ standi fyrir öflugum Íslandsmótum þar sem fagmannlega er staðið að öllum undirbúningi og framkvæmd.

Störf mín fyrir golfhreyfinguna undanfarin ár hafa verið mjög lærdómsrík og gefandi og ég tel að ég geti orðið hreyfingunni að frekara liði. Ég óska því eftir stuðningi við áframhaldandi setu mína í stjórn GSÍ.


Jón B. Stefánsson

Jón B. Stefánsson.

Ég heiti Jón B. Stefánsson og býð mig fram til stjórnar GSÍ.

Ég er eins og gefur að skilja áhugamaður um golf og hef stundað íþróttina um árabil og tel að ég hafi ýmislegt til málanna að leggja við áframhaldandi uppbyggingu golfíþróttarinnar sem stjórnamaður GSÍ. Í gegnum árin hef ég sinnt ýmsum störfum tengdum íþróttum almennt bæði við stjórnunarstörf og áður fyrr sem þjálfari. Ég er félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbi Flúða og Golfklúbbi Þorlákshafnar.

2016 tók ég við sem formaður LEK Landssambands eldri kylfinga og gegndi því starfi til ársins 2020. Árið 2017 var ég kjörinn í stjórn GSÍ og kom inn í stjórnina sem tengiliður við LEK og hef átt sæti þar síðan. 2016 var ég kjörinn í stjórn GR og sat i stjórninni til 2020.

Á fyrri hluta ársins 2017 voru viðræður í gangi á milli GSÍ og LEK um sameiningu og að LEK yrði hluti GSÍ. Stofnuð var starfsnefnd hjá GSÍ – LEK – Landsnefnd eldri kylfinga og var henni ætlað að stuðla að samfellu og sameiningu. Þessi áform gengu ekki eftir eins og lagt var upp með og því áfram verk að vinna til að tryggja gott samstarf á milli GSÍ og LEK.

Helstu áherslur mínar í verði ég kjörinn til áframhaldandi setu í stjórn GSÍ eru helst þessi.

  • Vinna að málefnum eldri kylfinga á víðum grunni og gæta hagsmuna þeirra og LEK. Eldri kylfingar eru stór hópur innan golfhreyfingarinnar og eru að meirihluta fyrst og fremst að stunda íþróttina sér til ánægju en ekki sem afreksíþrótt. Mikilvægt er að skapa umhverfi sem bæði gagnast hinum almenna kylfingi og eins þeim sem taka þátt í afreksstarfi innan LEK og hafa sýnt að þeir eru ekki eftirbátar á alþjóðasviðinu
  • Ég er fæddur og uppalinn á Selfossi og hef sterkar taugar til landsbyggðarinnar. Mig langar að stuðla að betri og öflugri tengingu stjórnar GSÍ við klúbba á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu með skipulögðum heimsóknum stjórnarmanna og starfsmanna GSÍ til skrafs og ráðagerða. Ég hef rætt við viðtakandi forseta um að taka að mér að skipuleggja og styrkja tengingu og þjónustu GSÍ við klúbbana og fengið jákvæðar undirtektir nái ég kjöri til stjórnar GSÍ.
  • Efla stöðu golfíþróttarinnar gagnvart stjórnvöldum til jafns við aðrar greinar sem hafa hafa haft forskot og þá sérstaklega hvað varðar mannvirki.

Menntaður sem kennari frá Kennaraskóli Íslands, og íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóli Íslands.

Skólameistari Tækniskólans ár frá og til 2003 til 2018 og nú ráðgjafi og verkefnisstjóri nýbyggingar skólans. Starfaði áður við stjórnunarstörf heima og erlendis hjá Eimskip,og hjá Heklu og forstjóri 66° Norður.

2019-2021 ráðgjafi menntamálaráðherra á sviði starfsmenntanáms og er formaður í Starfsgreinanefndar, formaður Vinnustaðanámssjóðs og formaður stjórnar Keilis- miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.


Jón Steindór Árnason

Jón Steindór Árnason.

Golfíþróttin hefur fylgt mér stóran hluta ævinnar. Framan af fór mestur tími í að spila golf, en eftir að þeim stundum fór fækkandi færðist áherslan yfir í störf í þágu golfhreyfingarinnar.

Ég var fyrst kjörinn í stjórn GSÍ árið 2017. Fram að þeim tíma hafði ég átt sæti í stjórn Golfklúbbs Akureyrar sem varaformaður og gjaldkeri, auk þess að hafa setið í ýmsum nefndum á vegum þess góða félags. Samhliða þessu áhugamáli mínu hef ég starfað við fjárfestingar og sinnt stjórnunar- og sérfræðistörfum af ýmsum toga.

Frá því ég tók sæti í stjórn GSÍ hef ég farið fyrir afreksnefnd þar sem ég hef haft tækifæri til að kynnast og vinna með ákaflega hæfu fólki. Þar hef ég lagt áherslu á að styðja við það metnaðarfulla starf sem hefur verið unnið í afreksmálum á undanförnum árum. Verði ég áfram í stjórn GSÍ hef ég hug á að taka að mér starf gjaldkera sambandsins.

Að þessu sögðu hef ég mikinn áhuga á að vinna áfram að hag golfhreyfingarinnar og býð mig þess vegna fram til áframhaldandi setu í stjórn GSÍ til næstu tveggja ára.


Karen Sævarsdóttir 

Karen Sævarsdóttir.

Ég heiti Karen Sævarsdóttir og býð mig fram til stjórnar GSÍ. 

Ég hef stundað og verið í kringum golfíþróttina frá fimm ára aldri eða í yfir 40 ár. Framan af stundaði ég golfið sem keppnisíþrótt og fór í fyrstu landsliðsferðina 11 ára gömul. Ég hef leikið á heimsmeistaramóti, Evrópumóti einstaklinga og öllum helstu liðamótum sem í boði voru sem áhugakylfingur. Ég fór í háskólagolfið í Bandaríkjunum og þjálfaði svo seinna háskólalið í um eitt og hálft ár og hef hjálpað nokkrum íslenskum kylfingum að komast til Bandaríkjana í skóla. Ég reyndi fyrir mér í atvinnumennsku og þekki því vel þá leið sem afrekskylfingar þurfa að fara til að komast í fremstu röð.

Ég er markaðsfræðingur að mennt og með MBA gráðu og hef starfað í fjármálageiranum sem stjórnandi og unnið þar að stefnumótun og framfylgt og tekið þátt í verkefnum á sviði breytingastjórnunar o.fl.

Ég er félagsmaður í Golfklúbbnum Keili en ég byrjaði að leika golf og keppti allan minn feril fyrir Golfklúbb Suðurnesja. Tenging mín við golfið í dag er sterk þar sem ég starfa eingöngu í golfinu við kennslu og þjálfun, við sjónvarpslýsingar og golfferðir. Ég hitti næstum daglega hinn almenna félaga og mikið af nýliðum og fylgist vel með stöðu íþróttarinnar í dag.

Þrátt fyrir mikinn vöxt golfsins á síðustu árum þá finnst mér enn mikilvægt að kynna og smita út eins mikið og hægt er hve frábær golfíþróttin er. Keppnisíþrótt, fjölskylduíþrótt og lýðheilsan, íþrótt sem þjónar hverjum og hvaða tilgangi sem er. Enn eru mörg verkefni framundan sem ég tel mig geta lagt mitt að mörkum til við, til að styrkja íþróttina ennfremur.   

Vegna reynslu minnar, áhuga og ástríðu fyrir golfíþróttinni tel ég mig vel í stakk búna til að starfa fyrir golfhreyfinguna á komandi árum.


Ólafur Arnarson

Ólafur Ingvar Arnarson.

Árið 2019 var ég kjörinn  í stjórn GSÍ. Þegar ég bauð mig fram síðast þá sagði ég að ég hefði metnað í að koma að afreksmálum GSÍ. Ég hef setið í afreksnefnd GSÍ frá 2019-2021 og komið að innleiðingu á afreksstefnu GSÍ ásamt öðrum aðilum í afreksnefnd og nýjum landsliðþjálfara.

Þær breytingar og áherslur sem gerðar hafa verið í afreksmálum GSÍ hafa verið mjög góðar fyrir afreksmál GSÍ. Tel ég að grunnur að öflugu barna og unglingastarfi skili sér í öflugu afreksstarfi og þar með náum við að búa til framtíðar kylfinga. Ég hef mikinn áhuga þvi að starfa áfram í afreksnefnd og fylgja eftir því góða starfi sem þar er unnið, ásamt öllum þeim fjölmörgu verkefnum innan GSÍ.

Ég hef ávallt hafti mikinn áhuga á félagsmálum og starfaði ég fyrir knattspyrnufélagið Fram frá 1996-2016. Meðal annars sem formaður handknattleiksdeildar Fram tímabilið 2001-2005 og tímabilið 2010-2012. Einnig var ég formaður Aðalstjórnar Knattspyrnufélagsins Fram 2012-2016. Tel ég mig hafa töluverða reynslu af stjórnarsetu, félagsstörfum og afreksmálum.

Ég er kvæntur Unni Helgu Óttarsdóttur og eigum við tvö börn Örnu Dís Ólafsdóttur 23 ára og Dag Fannar Ólafsson 17 ára sem er afrekskylfingur í GKG.  

Ég vil þakka forseta GSÍ, Hauki Erni Birgissyni, fyrir samstarfið og það mikla starf sem hann hefur lagt í fyrir Golfsamband Íslands. Einnig vil ég þakka þeim aðilum sem ganga úr stjórn fyrir samstarfið.

Ég býð mig fram til stjórnarsetu hjá Golfsambandi Íslands til að vinna áfram með hag golfhreyfingarinnar í huga og býð mig þess vegna fram til áframhaldandi setu í stjórn GSÍ til næstu tveggja ára.

Ragnar Baldursson

Ragnar Baldursson.

Ragnar Baldursson heiti ég og er meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur og Golfklúbbi Öndverðarness. Ég býð mig fram í stjórn Golfsambands Íslands.

Ég hef starfað sem lögmaður frá árinu 1996. Ég lauk meistaranámi í íþróttalögfræði (Sports Law) frá De Montford háskólanum í Leicester, Englandi, árið 2018. Auk þess að sinna lögmennsku starfa ég sem stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Ég sat í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur frá 2010-2018 þar af sem varaformaður frá 2012-2018. Einnig hef setið í afreksnefnd GSÍ frá 2014 og verið formaður dómstóls GSÍ frá 2019. 

Ég hef alltaf lagt áherslu á jafnræði kynjanna í sínum störfum innan golfhreyfingarinnar og mun gera áfram nái ég kjöri. Þá tel ég mjög mikilvægt að GSÍ takist á við áskoranir sem fylgja hvers konar ofbeldismálum er kunna að koma upp innan hreyfingarinnar af ábyrgð og festu.

Mikilvægt er að fræða fyrirsvarsmenn, stjórnarmenn og starfsmenn golfklúbba og golfsambandsins um hvernig bregðast skal við þegar mál koma upp, sinna markvissum forvörnum og setja upp skýra verkferla.

Auk þeirrar mikilvægu þjónustu við golfklúbba landsins sem GSÍ sinnir leggur ég áherslu á að línur verði skerptar í forgangsröðun verkefna innan GSÍ þar sem aukin áhersla verði lögð á afreks- og mótamál, sem eru grundvallarverkefni allra íþróttasambanda.

Eins og dæmin sýna hefur góður árangur íslenskra kylfinga á erlendum vettvangi gríðarlegt gildi fyrir golfíþróttina. Ekki aðeins vegna þess stolts og viðurkenningar sem fylgir frábærum árangri heldur hefur jafnframt sýnt sig að betri kynningu fær íþróttin ekki.


Viktor Elvar Viktorsson

Viktor Elvar Viktorsson.

Ég býð mig fram til stjórnar GSÍ. Ég hef verið stjórnarmaður í GSÍ frá árinu 2019 og meðlimur í mótanefnd sambandsins frá árinu 2017. Mótamál eru mér því afar hugleikin og hefur mestur tími minn sem stjórnarmaður hjá GSÍ undanfarin ár farið í störf mótanefndar sem og í tengslum við Íslandsmót GSÍ.

Ég stundaði golf sem unglingur en hætti þar sem áhersla á fótbolta var meiri í íþrótta bænum Akranesi. Sem betur fer þá tók ég golfið upp aftur eftir að fótbolta ferlinum lauk. Ég var stjórnarmaður í Golfklúbbnum Leyni og formaður hans, auk þess sem ég sat í mótanefnd Leynis í nokkur ár.

Ég hef komið að nokkrum Íslandsmótum GSÍ, sem foreldri keppenda, sem mótstjóri, sem dómari og einnig setið í mótsstjórnum. Ég er með landsdómara réttindi og dæmi reglulega auk þess sem ég hef reynt að miðla þekkingu á golfreglunum með félögum mínum í golfklúbbnum Leyni.

Ég er ekki þekktur fyrir að trana mér mikið fram og láta á mér bera en ég er hinsvegar alltaf tilbúinn að taka þátt í góðum verkum og e.t.v. er minn helsti kostur fyrir hreyfinguna að ég á erfitt með að segja nei þegar ég er beðinn um eitthvað. Konan mín segir að það geti hinsvegar verið ákveðinn löstur fyrir mig og fjölskylduna! Hún styður mig þó í þessu brölti mínu, ennþá!

Mér þætti vænt um ef þið sæjuð ykkur fært um að setja nafnið mitt á kjörseðilinn í ár. Ég hef ennþá áhuga á að starfa fyrir ykkur og vona að ég hafi staðið mig þokkalega undanfarin ár. Ég lofa einnig að þegar áhuginn slökknar eða minnkar þá læt ég mig hverfa og hleypi öðrum ferskum og áhugasömum aðilum að!


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ