Auglýsing

Þrír kylfingar úr röðum GKG hefja leik miðvikudaginn 14. september á 1. stig úrtökumótsins á Haugschlag vellinum í Austurríki. Það eru þeir Bjarki Pétursson, Sigurður Arnar Garðarson og Kristófer Orri Þórðarson.

Á þessu hausti ætla 10 íslenskir kylfingar að reyna sig á úrtökumótinu fyrir DP-Evrópumótaröðina.

Alls er keppt á níu keppnisstöðum á 1. stigi úrtökumótsins og er fjórum mótum nú þegar lokið og síðasta mótið fer fram í byrjun október.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í Austurríki.

Axel Bóasson, GK, og Kristófer Karl Karlsson, GM hófu leik á 1. stigi úrtökumótsins fyrir DP Evrópumótaröðina þriðjudaginn 13. september. Þeir keppa á Arlandastad vellinum skammt frá Stokkhólmi í Svíþjóð.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og skor í Svíþjóð.

Þann 4. október keppir Andri Már Óskarsson, GOS, á Hardelot vellinum í Frakklandi. Nánar hér.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG og Haraldur Franklín Magnús, GR, mæta til leiks á 2. stigi úrtökumótsins.

Hákon Örn Magnússon, GR og Aron Snær Júlíusson, GKG kepptu í síðustu viku á Montado vellinum í Palmela í Portúgal. Hákon Örn lék á 7 höggum undir pari samtals en það dugði ekki til að komast á 2. stig úrtökumótsins. Hann endaði í 51.-60. sæti. Aron Snær lék á 1 höggi undir pari vallar á fyrstu þremur hringjunum og komst ekki áfram.

Gera má ráð fyrir að um 800 keppendur taki þátt á öllum níu mótunum á 1. stig úrtökumótsins og um 20% þeirra komast áfram áfram á 2. stigið. Til þess að komast alla leið inn á DP-Evrópumótaröðina þurfa keppendur að fara í gegnum 1., 2. og 3. stig úrtökumótsins. Lokaúrtökumótið fer fram í byrjun nóvember á Lakes golfsvæðinu við Tarragona á Spáni. Þar keppa 156 keppendur um 25 sæti á DP-Evrópumótaröðinni 2023.

<strong>Bjarki Pétursson Myndsethgolfis<strong>
<strong>Sigurður Arnar Garðarsson Myndsethgolfis <strong>
<strong>Kristófer Orri Þórðarson Myndsethgolfis<strong>

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ