Auglýsing

Hákon Örn Magnússon, GR og Aron Snær Júlíusson, GKG hófu leik í gær á 1. stigi úrtökumótsins fyrir DP Evrópumótaröðina í golfi. Hákon Örn og Aron Snær keppa á Montado vellinum í Palmela í Portúgal.

Á þessu hausti ætla 10 íslenskir kylfingar að reyna sig á úrtökumótinu fyrir DP-Evrópumótaröðina.

Alls er keppt á níu keppnisstöðum á 1. stigi úrtökumótsins og er þremur mótum nú þegar lokið og síðasta mótið fer fram í byrjun október.

Axel Bóasson, GK og Kristófer Karl Karlsson, GM hefja leik á 1. stigi úrtökumótsins 13. september á Arlandastad vellinum við Stokkhólm í Svíþjóð. Nánar hér.

Þann 14. september hefja Bjarki Pétursson, GKG, Sigurður Arnar Garðarsson, GKG og Kristófer Orri Þórðarson, GKG leik á 1. stig úrtökumótsins á Haugschlag vellinum í Austurríki. Nánar hér.

Þann 4. október keppir Andri Már Óskarsson, GOS, á Hardelot vellinum í Frakklandi. Nánar hér.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG og Haraldur Franklín Magnús, GR, mæta til leiks á 2. stigi úrtökumótsins.

Alls eru 130 keppendur á mótinu í Portúgal.

Gera má ráð fyrir að um 800 keppendur taki þátt á öllum níu mótunum á 1. stig úrtökumótsins og um 20% þeirra komast áfram áfram á 2. stigið. Til þess að komast alla leið inn á DP-Evrópumótaröðina þurfa keppendur að fara í gegnum 1., 2. og 3. stig úrtökumótsins. Lokaúrtökumótið fer fram í byrjun nóvember á Lakes golfsvæðinu við Tarragona á Spáni. Þar keppa 156 keppendur um 25 sæti á DP-Evrópumótaröðinni 2023.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Hákon Örn lék á 2 höggum undir pari á 1. hringnum og Aron Snær lék á 1 höggi yfir pari. Hákon Örn er í 33.-46. sæti og Aron Snær er í 81.-92. sæti.

Hákon Örn Magnússon. Mynd/seth@golf.is
Aron Snær Júlíusson, GKG. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ