Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbu Mosfellbæjar, var í gær kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar. Kristján varð Íslandsmeistari í holukeppni og hann sigraði á þremur af alls sjö stigamótum Eimskipsmótaraðar Golfsambands Íslands. Hann varð efstur á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar og er því stigameistari ársins 2014. Þar að auki fékk hann Júlíusarbikarinn sem veittur er þeim sem er með lægsta meðalskorið á Eimskipsmótaröðinni. Kristján var með meðalhöggafjölda upp á 71,37 högg.
Deildu:
Mikil gleði á Golfhátíðinni á Flúðum
12.06.2026
Fréttir
Íslandsmótið í holukeppni hefst 19. júní
09.06.2026
Fréttir | GSÍ mótaröðin


