Íslandsmótið í golfi 2025 fer fram á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis, dagana 7.-10. ágúst.
Íslandmótið í ár er það sjötta sem haldið hefur verið á Hvaleyrarvelli. Frá því að völlurinn varð 18 holur hafa kylfingar úr Keili ávallt sigrað í karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi, þegar mótið hefur farið fram á þeirra heimavelli.

Andrea í þrettánda sæti á lokamóti LET Access

Ný sjálfbærniskýrsla GSÍ gefin út

Andrea í öðru sæti fyrir lokahringinn á LET Access

Lokamót LET Access - barist um sæti á Evrópumótaröðinni

Hulda Clara í fjórða sæti á LET Access

Ragnhildur í forystu eftir frábæran fyrsta hring á LET Access

Andrea, Hulda og Ragnhildur á meðal keppenda í næstsíðasta móti LET Access

Ársskýrsla GSÍ 2026 og skýrsla um samfélagslegt virði golfs komnar út

Rósa og Steindór heiðruð á formannafundi GSÍ

Akureyrarbær hlaut heiðursskjal Golfsambands Íslands

Formannafundi GSÍ 2026 lokið

Anna María Reynisdóttir er sjálfboðaliði ársins 2026

Golfklúbbur Akureyrar hlaut Sjálfbærniverðlaun GSÍ 2026

Nýr landsliðshópur GSÍ valinn

Formannafundur GSÍ haldinn á Akureyri
Fjölmargir keppendur taka þátt í mótinu í ár og þurfti að leika undankeppni um síðustu lausu sæti mótsins. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og margir fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi.
Keppendur mótsins koma úr 17 golfklúbbum víðs vegar af landinu. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, alls 32, en heimamenn í Golfklúbbnum Keili eiga 21 kylfing í mótinu.
Keppendur Íslandsmótsins, niður á golfklúbb:
| Klúbbur | Karlar | Konur | Samtals |
| GA | 6 | 3 | 9 |
| GBO | 2 | 0 | 2 |
| GBR | 1 | 0 | 1 |
| GFB | 1 | 0 | 1 |
| GK | 13 | 8 | 21 |
| GKG | 15 | 11 | 26 |
| GM | 7 | 8 | 15 |
| GO | 0 | 1 | 1 |
| GOS | 6 | 3 | 9 |
| GR | 21 | 11 | 32 |
| GS | 4 | 1 | 5 |
| GSE | 0 | 1 | 1 |
| GSS | 0 | 2 | 2 |
| GÚ | 1 | 0 | 1 |
| GV | 3 | 0 | 3 |
| GVS | 1 | 0 | 1 |
| NK | 4 | 0 | 4 |
Íslandsmótið á Hvaleyrarvelli
Íslandsmótið fór fyrst fram á Hvaleyrarvelli árið 1967, þegar keppt var í kvennaflokki í fyrsta skiptið. Keppt var á 6 holu velli, en Keilir var stofnaður í febrúar árið 1967.
Árið 1970 fór fyrri hluti Íslandsmóts karla fram á Hvaleyrarvelli en lokadagarnir á Hólmsvelli í Leiru.
Árið 1973 sigraði Björgvin Þorsteinsson, GA, í karlaflokki á Íslandsmótinu á Hvaleyrarvelli sem var þá 12 holur. Jakobína Guðlaugsdóttir, GV, sigraði í kvennaflokki á því móti.
Alls liðu 26 ár þar til að Íslandsmótið fór fram á Hvaleyrarvelli á ný.
Árið 1999 fór Íslandsmótið fram á Hvaleyrarvelli, sem hafði opnað sem 18 holu völlur árið 1997. Á Íslandsmótinu 1999 sigruðu Ólöf María Jónsdóttir og Björgvin Sigurbergsson, en þau eru bæði í Golfklúbbnum Keili.
Árið 2007 fór mótið fram á Hvaleyrarvelli og þar sigraði Björgvin Sigurbergsson, GK, og Nína Björk Geirsdóttir, sigraði í kvennaflokki, en hún var þá í Golfklúbbnum Kili sem varð síðar að Golfklúbbi Mosfellsbæjar.
Íslandsmótið síðast fram á Hvaleyrarvelli árið 2017. Þar sigraði Axel Bóasson, úr GK, í karlaflokki og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, sigraði í kvennaflokki.


