Íslandsmót unglinga hófst föstudaginn 22. júní á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Alls eru 148 keppendur skráðir til leiks. Keppt er í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum. Aldursflokkarnir eru 14 ára og yngri, 15-16 ára, 17-18 ára og 19-21 árs.
Alls eru 13 klúbbar með keppendur á þessu Íslandsmóti unglinga. Flestir keppendur eru frá GKG eða 39 alls og GR kemur þar á eftir með 30 keppendur.
Meðalforgjöf keppenda er 9,2 en lægsta forgjöfin er -2. Alls eru 14 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf.
Klúbbur | Fjöldi keppenda | |
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | GKG | 39 |
Golfklúbbur Reykjavíkur | GR | 30 |
Golfklúbbur Mosfellsbæjar | GM | 17 |
Golfklúbburinn Keilir | GK | 11 |
Golfklúbbur Akureyrar | GA | 10 |
Golfklúbbur Selfoss | GOS | 8 |
Nesklúbburinn | NK | 7 |
Golfklúbbur Vestmannaeyja | GV | 7 |
Golfklúbburinn Leynir | GL | 7 |
Golfklúbbur Suðurnesja | GS | 7 |
Golfklúbburinn Hamar Dalvík | GHD | 4 |
Golfklúbbur Álftaness | GÁ | 1 |
Golfklúbbur Ísafjarðar | GÍ | 1 |