GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 2. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Grundarfjarðarvelli hjá Golfklúbbnum Vestarr dagana 20.-21. ágúst.

Fyrirkomulagi mótsins var breytt á öðrum keppnisdegi vegna veðurspár. Fjórða og fimmta umferð voru leiknar yfir níu holur í stað 18, þar sem ekki var útlit fyrir að hægt yrði að leika fimmtu umferðina laugardaginn 22. ágúst.

Golfklúbbur Akureyrar stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn sameiginlegri sveit Golfklúbbsins Hamars Dalvík og Golfklúbbs Fjallabyggðar í úrslitaleiknum. GA tryggði sér þar með sæti í 1. deild kvenna 50 ára og eldri að ári.

Golfklúbburinn Vestarr endaði í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbi Borgarness í leiknum um bronsið.

Lokastaðan í 2. deild kvenna 50+ árið 2026

  1. Golfklúbbur Akureyrar
  2. Golfklúbburinn Hamar Dalvík/Golfklúbbur Fjallabyggðar
  3. Golfklúbburinn Vestarr
  4. Golfklúbbur Borgarness
  5. Golfklúbburinn Setberg
  6. Golfklúbbur Kiðjabergs
  7. Golfklúbbur Húsavíkur
  8. Golfklúbbur Öndverðarness
  9. Golfklúbbur Selfoss

Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 2. deild kvenna 50+.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ