GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 4. deild karla 50 ára og eldri fór fram á Arnarholtsvelli á Dalvík dagana 20.-21. ágúst.

Alls tóku fjögur lið þátt og léku þau öll innbyrðis.

Golfklúbbur Grindavíkur stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið allar þrjár viðureignir sínar. Grindvíkingar unnu Golfklúbbinn Vestarr 2-1 og fylgdu því eftir með 3-0 sigrum gegn heimamönnum í Dalvík og Golfklúbbi Álftaness.

Golfklúbbur Grindavíkur tryggði sér því sæti í 3. deild karla 50 ára og eldri að ári.

Golfklúbburinn Hamar Dalvík endaði í öðru sæti eftir 2-1 sigra gegn Golfklúbbnum Vestarr og Golfklúbbi Álftaness. Álftanes hafnaði í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Vestarr.

Lokastaðan í 4. deild karla 50+ árið 2026

  1. Golfklúbbur Grindavíkur
  2. Golfklúbburinn Hamar Dalvík
  3. Golfklúbbur Álftaness
  4. Golfklúbburinn Vestarr

Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 4. deild karla 50+.

Sveit Dalvíkur
Sveit Álftaness

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ