GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 3. deild karla 50 ára og eldri fór fram á Gufudalsvelli Golfklúbbs Hveragerðis dagana 20.-22. ágúst. Sjö lið tóku þátt í mótinu.

Golfklúbbur Kiðjabergs stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn heimamönnum í Golfklúbbi Hveragerðis í úrslitaleiknum. Með sigrinum tryggði Golfklúbbur Kiðjabergs sér sæti í 2. deild að ári.

Magnús R. Magnússon og Eyjólfur Jónsson unnu fjórmenninginn í úrslitaleiknum fyrir Kiðjaberg, 8/7, gegn Halldóri Friðgeiri Ólafssyni og Elíasi Óskarssyni. Báðir tvímenningsleikirnir enduðu jafnir. Gestur Þórisson og Erlingur Arthursson skildu jafnir og sömuleiðis Halldór Halldórsson og Einar Lyng Hjaltason.

Golfklúbbur Hornafjarðar varð í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbi Ísafjarðar.

Lokastaðan í 3. deild karla 50+

  1. Golfklúbbur Kiðjabergs
  2. Golfklúbbur Hveragerðis
  3. Golfklúbbur Hornafjarðar
  4. Golfklúbbur Ísafjarðar
  5. Golfklúbbur Húsavíkur
  6. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
  7. Golfklúbburinn Þverá Hellishólum

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í 3. deild karla 50+.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ