Auglýsing

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, er Íslandsmeistari golfklúbba 2022 í 1. deild karla. Úrslitin réðust á Hlíðavelli í dag þar sem að GKG og Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, léku til úrslita. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM, varð í þriðja sæti og GA, Golfklúbbur Akureyrar í fjórða sæti.

Fyrst var keppt um Íslandsmeistaratitli golfklúbba árið 1961 og er mótið í ár það 62. í röðinni.

Þetta er í 8. sinn sem GKG vinnur Íslandsmót golfklúbba í 1. deild en GKG hefur á síðustu sex árum unnið titilinn fjórum sinnum.

GKG sigraði GR 3-2 í úrslitaleiknum í dag þar sem að úrslitin réðust í lokaviðureigninni. Öll úrslit leiksins má sjá á myndinni hér fyrir neðan. GM sigraði GA 3-2 og eru öll úrslit úr þeirri viðureign hér fyrir neðan.

Mikil spenna var í baráttunni um fall í 2. deild en GKB endaði í 8. sæti og leikur í 2. deild á næsta ári.

1. deild karla 1.-4. sæti – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

1. deild karla 5.-8. sæti – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Lokastaðan í 1. deild karla:

1. GKG, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar.
2. GR, Golfklúbbur Reykjavíkur.
3. GM, Golfklúbbur Mosfellsbæjar.
4. GA, Golfklúbbur Akureyrar.
5. GOS, Golfklúbbur Selfoss.
6. GS, Golfklúbbur Suðurnesja.
7. GV, Golfklúbbur Vestmannaeyja.
8. GKB, Golfklúbbur Kiðjabergs.

Íslandsmeistarar 2022 – GKG. Mynd/seth@golf.is
Lið GM sem varð í þriðja sæti. Mynd/seth@golf.is
Lið GR sem varð í öðru sæti. Mynd/seth@golf.is
Lið GA sem varð í fjórða sæti: Mynd/seth@golf.is

Myndasafn frá mótinu er hér.

Íslandsmót golfklúbba GSÍ – Íslandsmeistarar frá upphafi

Karlaflokkur:

1961Golfklúbbur Akureyrar
1962Golfklúbbur Akureyrar
1963Golfklúbbur Akureyrar
1964Golfklúbbur Akureyrar
1965Golfklúbbur Akureyrar
1966Golfklúbbur Akureyrar
1967Golfklúbbur Reykjavíkur
1968Golfklúbbur Reykjavíkur
1969Golfklúbbur Reykjavíkur
1970Golfklúbbur Reykjavíkur
1971Golfklúbbur Akureyrar
1972Golfklúbbur Reykjavíkur
1973Golfklúbbur Suðurnesja
1974Golfklúbburinn Keilir
1975Golfklúbbur Reykjavíkur
1976Golfklúbbur Reykjavíkur
1977Golfklúbburinn Keilir
1978Golfklúbburinn Keilir
1979Golfklúbbur Reykjavíkur
1980Golfklúbbur Reykjavíkur
1981Golfklúbbur Reykjavíkur
1982Golfklúbbur Suðurnesja
1983Golfklúbbur Reykjavíkur
1984Golfklúbbur Reykjavíkur
1985Golfklúbbur Reykjavíkur
1986Golfklúbbur Reykjavíkur
1987Golfklúbbur Reykjavíkur
1988Golfklúbburinn Keilir
1989Golfklúbburinn Keilir
1990Golfklúbburinn Keilir
1991Golfklúbburinn Keilir
1992Golfklúbbur Reykjavíkur
1993Golfklúbburinn Keilir
1994Golfklúbbur Reykjavíkur
1995Golfklúbburinn Keilir
1996Golfklúbbur Suðurnesja
1997Golfkúbbur Reykjavíkur
1998Golfklúbbur Akureyrar
1999Golfklúbbur Reykjavíkur
2000Golfklúbburinn Keilir
2001Golfklúbbur Reykjavíkur
2002Golfklúbbur Reykjavíkur
2003Golfklúbbur Reykjavíkur
2004Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2005Golfklúbburinn Kjölur
2006Golfklúbburinn Kjölur
2007Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2008Golfklúbburinn Keilir
2009Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2010Golfklúbbur Reykjavíkur
2011Golfklúbbur Reykjavíkur
2012Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2013Golfklúbburinn Keilir
2014Golfklúbburinn Keilir
2015Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2016Golfklúbburinn Keilir
2017Golklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2018Golfklúbburinn Keilir
2019Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2020Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2021Golfklúbbur Reykjavíkur
2022Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

Fjöldi titla:

Golfklúbbur Reykjavíkur (25)
Golfklúbburinn Keilir (15)
Golfklúbbur Akureyrar (8)
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (8)
Golfklúbbur Suðurnesja (3)
Golfklúbburinn Kjölur (2)
Golfklúbbur Mosfellsbæjar (1)

Alls eru 8 lið sem leika í efstu deild karla þar sem að keppt er um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2022 í efstu deild karla.

GR og GKG leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn 2022 í efstu deild karla.

GR sigraði GM í undanúrslitum 3-2 þar sem að úrslitin réðust í bráðabana. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR og Kristófer Karl Karlsson, áttust þar við og fékk Sigurður Bjarki örn á 1. holu í bráðabananum.

GKG sigraði GA 3 1/2 – 1 1/2 og leikur GKG til úrslita um titilinn á morgun, laugardag.

Nú er ljóst að GR, GA, GKG og GM leika í undanúrslitum í dag. GR mætir GM og GKG leikur gegn GA. GV, GKB, GOS og GS leika um sæti 5-8.

Úrslitin í 1. deild karla ráðast á Hlíðavelli laugardaginn 23. júlí.

1. deild karla 1.-4. sæti – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

1. deild karla 5.-8. sæti – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Keppnisfyrirkomulagið er með hefðbundnum hætti.

Alls eru 8 lið sem leika í efstu deild karla.

Liðunum var skipt í tvo riðla, A og B.

A-riðill B-riðill
GR – Golfklúbbur Reykjavíkur GKG – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
GV – Golfklúbbur VestmannaeyjaGOS – Golfklúbbur Selfoss
GA – Golfklúbbur Akureyrar GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar
GKB – Golfklúbbur KiðjabergsGS – Golfklúbbur Suðurnesja

Í A-riðli eru GR, GV, GA og GKB.

A-riðill karla –smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit


Golfklúbbur Akureyrar: Lárus Ingi Antonsson, Heiðar Davíð Bragason, Valur Snær Guðmundsson, Eyþór Hrafnar Ketilsson, Tumi Hrafn Kúld, Örvar Samúelsson, Mikael Máni Sigurðsson og Óskar Páll Valsson.

Golfklúbbur Kiðjabergs: Halldór Heiðar Halldórsson, Arnar Snær Hákonarson, Pétur Freyr Pétursson, Andri Jón Sigurbjörnsson, Hjalti Steinar Sigurbjörnsson, Árni Freyr Sigurbjörnsson, Ólafur Sigurjónsson og Sturla Ómarsson.

Golfklúbbur Reykjavíkur: Andri Þór Björnsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Viktor Ingi Einarsson, Jóhannes Guðmundsson, Elvar Már Kristinsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson og Dagbjartur Sigurbrandsson.

Golfklúbbur Vestmannaeyja: Örlygur Helgi Grímsson, Einar Gunnarsson, Karl Haraldsson, Hallgrímur Júlíusson, Rúnar Þór Karlsson, Lárus Garðar Long, Daníel Ingi Sigurjónsson og Sigurbergur Sveinsson.

3. umferð:

GR sigraði í riðlinum og GA varð í öðru sæti og leika þessi lið til undanúrslita. GR mætir GM og GA leikur gegn GKG.

1. umferð:

Golfklúbbur Reykjavíkur er með 1,5 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í A-riðli. GR og GKB skildu jöfn í fyrstu umferðinni en GR sigraði GA 3-2 í 2. umferð. GA er með einn vinning eftir sigur gegn GV. Eyjamenn eru einnig með 1 vinning eftir sigur gegn GKB. Í lokaumferðinni í riðlinum mætast GR – GV og GA – GKB.

2 umferð:


Í B-riðli eru GKG, GOS, GM og GS.

B-riðill karla – smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar: Breki Gunnarsson Arndal, Ragnar Már Garðarsson, Sigurður Arnar Garðarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Hjalti Hlíðberg Jónasson, Aron Snær Júlíusson, Gunnlaugur Árni Sveinsson og Kristófer Orri Þórðarson.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar: Kristján Þór Einarsson, Björn Óskar Guðjónsson, Andri Már Guðmundsson, Sverrir Haraldsson, Aron Ingi Hákonarson, Kristófer Karl Karlsson, Arnór Daði Rafnsson og Ingi Þór Ólafson.

Golfklúbbur Selfoss: Heiðar Snær Bjarnason, Aron Emil Gunnarsson, Hlynur Geir Hjartarson, Arnór Ingi Hlíðdal, Símon Levý Héðinsson, Pétur Sigurdór Pálsson og Andri Már Óskarsson.

Golfklúbbur Suðurnesja: Rúnar Óli Einarsson, Stefán Ragnar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Pétur Þór Jaidee, Róbert Smári Jónsson, Björgvin Sigmundsson, Logi Sigurðsson og Sigurpáll Geir Sveinsson.

GKG er með 2 vinninga eftir fyrstu tvær umferðirnar. GKG sigraði GS 3-2 í fyrstu umferðinni og GM lagði GOS 3,5 – 1,5. GKG sigraði GM 3-2 í 2. umferð og GS sigraði GOS 3-2.

1 umferð:

2. umferð

Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlakeppninni. Í hverri viðureign eru leiknir tveir fjórmenningsleikir og þrír tvímenningsleikir.

Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í undanúrslit.

Efsta liðið í A-riðli leikur í undanúrslitum gegn liðin nr. 2 úr B-riðli.

Efsta liðið úr B-riðli leikur í undanúrslitum gegn liði nr. 2 úr A-riðli.

Neðsta liðið í 1. deild karla fellur í 2. deild.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur titil að verja í karlaflokk í efstu deild.

Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 25 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 7,
Golfklúbbur Suðurnesja 3), og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 3 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ