GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fer fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Keppt er í drengjaflokki 16 ára og yngri og í bæði stúlkna- og drengjaflokki 18 ára og yngri. Frábær skráning hefur verið í mótin, en tæplega þrjátíu sveitir munu leika um Íslandsmeistaratitlana þrjá á Akranesi næstu daga.

Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.

Hér má fylgjast með öllum úrslitum mótsins

Drengir 16 ára og yngri:

Alls eru þrettán lið í keppni drengja 16 ára og yngri.

  • Golfklúbbur Akureyrar
  • Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 1
  • Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2
  • Golfklúbbur Reykjavíkur
  • Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1
  • Golfklúbbur Mosfellsbæjar 2
  • Golfklúbbur Selfoss
  • Golfklúbburinn Keilir 1
  • Golfklúbburinn Keilir 2
  • Nesklúbburinn
  • Golfklúbbur Ísafjarðar
  • Golfklúbburinn Leynir
  • Golfklúbbur Hveragerðis

Stúlkur 18 ára og yngri:

Alls eru sjö lið í keppni stúlkna 18 ára og yngri.

  • Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Golfklúbburinn Keilir
  • Golfklúbburinn Keilir 2
  • Golfklúbbur Akureyrar
  • Golfklúbbur Reykjavíkur 1
  • Golfklúbbur Reykjavíkur 2
  • Golfklúbburinn Leynir/Skagafjörður

Drengir 18 ára og yngri:

Alls eru níu lið í keppni drengja 18 ára og yngri.

  • Golfklúbbur Akureyrar
  • Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  • Golfklúbbur Reykjavíkur
  • Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1
  • Golfklúbbur Mosfellsbæjar 2
  • Golfklúbburinn Keilir 1
  • Golfklúbburinn Keilir 2
  • Nesklúbburinn
  • Golfklúbburinn Leynir

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ