Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fer fram á Selsvelli á Flúðum dagana 24.-26. júní. Keppt er í stúlkna- og drengjaflokki.
Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.
Hér má fylgjast með öllum úrslitum mótsins
Stúlkur 14 ára og yngri:
Alls eru fjögur lið í keppni stúlkna 14 ára og yngri.
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- Golfklúbburinn Keilir
- Nesklúbburinn
- Golfklúbburinn Oddur
Drengir 14 ára og yngri:
Alls eru sautján lið í keppni drengja 14 ára og yngri.
- Golfklúbbur Akureyrar
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 1
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 3
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1
- Golfklúbbur Reykjavíkur 1
- Golfklúbbur Reykjavíkur 2
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 2
- Golfklúbbur Selfoss
- Golfklúbbur Skagafjarðar 1
- Golfklúbbur Skagafjarðar 2
- Golfklúbbur Suðurnesja
- Golfklúbburinn Keilir 1
- Golfklúbburinn Keilir 2
- Nesklúbburinn 1
- Nesklúbburinn 2
- Golfklúbburinn Oddur



