Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 16 ára og yngri fer fram á Strandarvelli á Hellu dagana 22.-24. júní.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu:

Í stúlknaflokki eru fjögur lið sem taka þátt. Í stúlknaflokki er keppt í einum riðli og leikin ein umferð í riðlinum þar sem öll liðin mæta hvort öðru einu sinni.

Í drengjaflokki eru 9 lið sem taka þátt. Í drengjaflokki er leikinn höggleikur í dag og úrslit höggleiksins ráða því hvort liðin leika í A, B eða C riðli í holukeppninni.

Þrjú bestu skorin hjá hverju liði telja í höggleikskeppninni.

Í holukeppninni er leikinn einn fjórmenningur og tveir tvímenningsleikir. Í fjórmenningsleikjunum eru tveir leikmenn saman í liði og leika þeir einum bolta og slá þeir upphafshöggin til skiptis. Í tvímenningnum er einn leikmaður úr hvoru liði sem keppa gegn hvorum öðrum í holukeppni.

Fjögur efstu liðin úr höggleiknum leika í A-riðli og keppa þar um Íslandsmeistaratitilinn og sæti 1-4. Í B-riðli er keppt um sæti 5-8 og í C-riðli er keppt um sæti 9-10.

Liðin sem taka þátt í stúlknaflokki 16 ára og yngri eru:

GR (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GM 1 (Golfklúbbur Mosfellsbæjar).
GM 2 (Golfklúbbur Mosfellsbæjar).
GKG (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar).

Liðin sem taka þátt í drengjaflokki 16 ára og yngri eru:

GKG-1 (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar)
GSS (Golfklúbbur Skagafjarðar)
*Blandað lið drengir/stúlkur.
GR – Korpa (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GR – Grafarholt (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GA (Golfklúbbur Akureyrar)
GS (Golfklúbbur Suðurnesja)
*Blandað lið drengir/stúlkur.
NK (Nesklúbburinn)
GKG-2 (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ