Auglýsing

Golfklúbbur Mosfellsbæjar er Íslandsmeistari golfklúbba 2023 í 1. deild kvenna. Þetta er í fimmta sinn sem GM sigrar í efstu deild kvenna og annað árið í röð. 

Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbbur Reykjavíkur léku til úrslita um titilinn. GKG sigraði GK í leiknum um þriðja sætið. 

Í þessari frétt er að finna upplýsingar um rástíma, stöðu og úrslit. Staðan í leikjum verður uppfærð reglulega í umferðum eða á ca. 6 holu fresti. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali.

Alls tóku átta lið í 1. deild kvenna í keppninni um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2023. 

Liðunum var skipt í tvo fjögurra liða riðla.

Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komust í undanúrslit.

A-riðill lokastaða:
GM, GK, GS, NK,

GM lék í undanúrslitum gegn GKG og þar hafði GM betur 4-1. .

B-riðill lokastaðan: GR, GKG, GSS, GO.

GR lék í undanúrslitum gegn GK og þar hafði GR betur 3,5 – 1,5. 

Neðsta liðið í 1. deild kvenna fellur í 2. deild.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar hafði titil að verja í kvennaflokki í efstu deild.

Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Mótið í ár er það 42. í röðinni. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 5 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu:

 

Íslandsmót golfklúbba GSÍ – Íslandsmeistarar frá upphafi:

1982 Golfklúbbur Reykjavíkur
1983 Golfklúbbur Reykjavíkur
1984 Golfklúbbur Reykjavíkur
1985 Golfklúbburinn Keilir
1986 Golfklúbbur Reykjavíkur
1987 Golfklúbbur Reykjavíkur
1988 Golfklúbbur Reykjavíkur
1989 Golfklúbburinn Keilir
1990 Golfklúbbur Reykjavíkur
1991 Golfklúbburinn Keilir
1992 Golfklúbbur Reykjavíkur
1993 Golfklúbbur Reykjavíkur
1994 Golfklúbburinn Keilir
1995 Golfklúbburinn Keilir
1996 Golfklúbburinn Keilir
1997 Golfklúbburinn Keilir
1998 Golfklúbburinn Kjölur
1999 Golfklúbbur Reykjavíkur
2000 Golfklúbbur Reykjavíkur
2001 Golfklúbburinn Kjölur
2002 Golfklúbburinn Keilir
2003 Golfklúbburinn Keilir
2004 Golfklúbbur Reykjavíkur
2005 Golfklúbbur Reykjavíkur
2006 Golfklúbburinn Keilir
2007 Golfklúbburinn Kjölur
2008 Golfklúbburinn Keilir
2009 Golfklúbburinn Keilir
2010 Golfklúbbur Reykjavíkur
2011 Golfklúbbur Reykjavíkur
2012 Golfklúbbur Reykjavíkur
2013 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2014 Golfklúbburinn Keilir
2015 Golfklúbbur Reykjavíkur
2016 Golfklúbbur Reykjavíkur
2017 Golfklúbbur Reykjavíkur
2018 Golfklúbbur Reykjavíkur
2019 Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2020 Golfklúbbur Reykjavíkur
2021 Golfklúbbur Reykjavíkur
2022

Golfklúbbur Mosfellsbæjar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ