Íslandsmótið í holukeppni 2019 á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Húsatóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur.
Úrslitin réðust í dag þar sem að sjö Íslandsmeistarar í holukeppni voru krýndir:
Piltar 19-21 árs
- Sverrir Haraldsson, GM
 - Elvar Már Kristisson, GR
 - Henning Darri Þórðarson, GK
 - Lárus Garðar Long, GV
 

Piltar 17-18 ára
- Kristófer Karl Karlsson, GM
 - Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
 - Ingi Þór Ólafson, GM
 - Jón Gunnarsson, GKG
 

Stúlkur 17-18 ára
- Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
 - Ásdís Valtýsdóttir, GR
 - Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
 - María Björk Pálsdóttir, GKG
 

Drengir 15-16 ára
- Böðvar Bragi Pálsson, GR
 - Dagur Fannar Ólafsson, GKG
 - Bjarni Þór Lúðvíksson, GR
 - Finnur Gauti Vilhelmsson, GR
 

Telpur 15-16 ára
- Eva María Gestsdóttir, GKG
 - Nína Margrét Valtýsdóttir, GR
 - Katrín Sól Davíðsdóttir, GM
 - María Eir Guðjónsdóttir, GM
 

Stelpur 14 ára og yngri
- Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
 - Helga Signý Pálsdóttir, GR
 - Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
 - Pamela Ósk Hjaltadóttir, GR
 

Strákar 14 ára og yngri
- Markús Marelsson, GKG
 - Skúli Gunnar Ágústsson, GA
 - Veigar Heiðarsson, GA
 - Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
 

Allar upplýsingar um rástíma og stöðu má nálgast hér:
Mótið hófst á föstudaginn þar sem keppt verður í fjórum aldursflokkum hjá piltum og þremur aldursflokkum hjá stúlkum. Úrslitin ráðast síðdegis á sunnudaginn.
Tweets by GolfsambandKeppnisfyrirkomulagið er með hefðbundnum hætti samkvæmt reglugerð um mótið. Á fyrsta keppnisdeginum var leikinn höggleikur sem flokkast sem forkeppni. Úr forkeppninni fóru áfram þeir 16 keppendur í hverjum flokki sem hafa lægst skor.
Mjög góð þátttaka er í Grindavík en alls eru 132 keppendur skráðir til leiks.
GKG er með flesta keppendur eða alls 30 og GR er með 27. Alls koma keppendur frá 11 golfklúbbum.
| GKG | 30 | 
| GR | 27 | 
| GK | 19 | 
| GM | 14 | 
| GA | 12 | 
| GL | 7 | 
| GS | 6 | 
| GOS | 5 | 
| GV | 5 | 
| GÍ | 1 | 
| GSS | 1 | 
Röðun í sæti skal fara eftir skori, sá sem hefur lægst skor fær nr. 1 í holukeppninni, næstlægsta skor nr. 2 og svo framvegis. Ef keppendur eru jafnir eftir forkeppnina ákvarðast röð þeirra eftir síðustu 9 holur, ef enn er jafnt þá skal varpa hlutkesti um röð.
Holukeppni:
Á öðrum degi skal leika fyrst 16 manna holukeppni og síðan 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.
Á þriðja degi skal leika 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast og síðan skal leikið til úrslita, bæði um 3. sætið og um 1. sætið.
Allir leikir í holukeppninni skulu vera 18 holur.
Í 16 manna úrslitum leikur leikmaður með lægsta skor í höggleiknum við leikmanninn sem varð í 16. sæti, leikmaðurinn með næst lægsta skorið við leikmanninn sem varð í 15. sæti o.s.frv. Sjá viðauka II.
Ef keppendur í tilteknum flokki eru 8 eða færri er 16 manna úrslitum sleppt og keppendur fara beint í 8 manna úrslit.
								
				
				
				
				
				
				
								
                                
                                
                                
                                
                                
                                
