GSÍ fjölskyldan
Golfer mid-swing on a sunny golf course with snow-dusted mountains in the distance.
7. hola Jaðarsvallar
Auglýsing

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vekur athygli á því að umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2026 þarf að skila í gegnum umsóknarvef sjóðsins fyrir miðnætti 11. janúar 2027.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

Aukið fjármagn til Ferðasjóðs árið 2026

Ferðasjóður hefur í ár fengið 100 milljóna króna viðbótarframlag frá ríkisvaldinu til úthlutunar vegna ferða ársins 2026. Viðbótarframlagið bætist við hefðbundið framlag til sjóðsins.

Heildarfjárhæð til úthlutunar á árinu nemur því 223,9 milljónum króna, sem verður úthlutað til íþrótta- og ungmennafélaga sem sækja um styrk úr sjóðnum.

Um er að ræða tímabundið viðbótarframlag og hefur aukið fjármagn til sjóðsins ekki verið tryggt til framtíðar. Áfram verður þó unnið að því að tryggja aukinn og viðvarandi stuðning við sjóðinn.

Upplýsingar um sjóðinn og umsóknarferlið.

Umsóknarsvæði sjóðsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ