GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslenska stúlknalandsliðið í golfi er í 22. sæti eftir fyrstu tvo keppnisdagana á heimsmeistaramóti stúlknalandsliða 2026, World Junior Girls Championship. Mótið fer fram á Brampton Golf Club í Ontario í Kanada dagana 30. september-3. október.

Liðið lék fyrsta hringinn á 157 höggum og þann annan á 150 höggum og bætti því skor sitt um sjö högg milli daga.

Fyrir hönd Íslands leika Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, og Lilja Maren Jónsdóttir, GA. Þetta er fjórða árið í röð sem Ísland tekur þátt í mótinu.

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu mótsins.

Embla Hrönn Hallsdóttir stendur best íslensku keppendanna í einstaklingskeppninni. Hún er jöfn í 48. sæti á tíu höggum yfir pari eftir hringi upp á 78 og 74 högg. Embla bætti skor sitt um fjögur högg á öðrum keppnisdegi og lék seinni níu holurnar á pari.

Bryndís Eva Ágústsdóttir er jöfn í 56. sæti á þrettán höggum yfir pari. Hún lék fyrsta hringinn á 79 höggum og þann annan á 76 höggum.

Lilja Maren Jónsdóttir er á fimmtán höggum yfir pari eftir tvo hringi. Hún lék fyrsta hringinn á 79 höggum og þann annan á 78 höggum.

Keppt er bæði í einstaklings- og liðakeppni. Leiknar eru 72 holur í höggleik, 18 holur á dag, og tvö bestu skorin hjá hverju liði telja á hverjum hring í liðakeppninni. Alls taka 24 sveitir frá 23 þjóðum þátt og keppendur eru 72.

Þriðji hringurinn verður leikinn í dag, föstudaginn 2. október, og lokahringurinn á morgun. Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni fær keppnisrétt á CPKC Women’s Open á LPGA mótaröðinni árið 2027.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ