Kvennasveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar er í 11. sæti eftir fyrsta keppnisdag Evrópumóts golfklúbba, European Ladies’ Club Trophy, sem stendur yfir á Falkenstein velli Hamburger Golf Club í Hamborg í Þýskalandi. GM lék á átta höggum yfir pari á fyrsta hringnum, en tvö bestu skor liðsins telja á hverjum hring.
Arna Rún Kristjánsdóttir kom í hús á 71 höggi, pari vallarins, og er jöfn í sjöunda sæti einstaklingskeppninnar. Hún lék fyrri níu holurnar á tveimur höggum yfir pari og þær seinni á tveimur höggum undir pari.
Kristín Sól Guðmundsdóttir lék á 79 höggum, átta höggum yfir pari, og Katrín Sól Davíðsdóttir á 85 höggum, fjórtán höggum yfir pari.
Alls taka 19 sveitir þátt í mótinu, sem fer fram dagana 1.-3. október. Sveitin með lægsta samanlagða skorið að þremur hringjum loknum verður Evrópumeistari.
GM tryggði sér þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti golfklúbba á Hlíðavelli í ágúst. Þar vann liðið Golfklúbb Akureyrar í úrslitaleik, 3.5–1.5, og fagnaði sínum fjórða Íslandsmeistaratitli á síðustu fimm árum.
Annar hringur mótsins fer fram í dag, föstudag, og lokahringurinn á morgun, laugardag.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins




