GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslenska stúlknalandsliðið í golfi keppir á heimsmeistaramóti stúlknalandsliða 2026, World Junior Girls Championship, sem fram fer á Brampton Golf Club í Ontario í Kanada dagana 30. september-3. október. Þetta er fjórða árið í röð sem Ísland tekur þátt í mótinu.

Keppt er bæði í einstaklings- og liðakeppni. Leiknar verða 72 holur í höggleik, 18 holur á dag, þar sem tvö bestu skorin hjá hverju liði telja á hverjum hring í liðakeppninni. Alls taka 24 sveitir frá 23 þjóðum þátt í mótinu. Kanada sendir tvö lið til keppni og keppendur eru 72 talsins.

Fyrir hönd Íslands leika Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, og Lilja Maren Jónsdóttir, GA. Bryndís Eva er sú eina þeirra sem var í íslenska liðinu í fyrra, en Embla Hrönn og Lilja Maren taka nú þátt í fyrsta sinn.

Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu mótsins.

Síðustu tveir dagar hafa farið í að kynnast vellinum og undirbúa liðið fyrir keppnina. Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, er með hópnum í Kanada.

„Völlurinn er alveg frábær, þetta er skógarvöllur með mjög hröðum og hæðóttum flötum. Völlurinn er í lengri kantinum þannig stelpurnar eru á þó nokkrum holum með langar kylfur í innáhögg. Við erum búin að nýta dagana vel í að ná hraðanum á flötunum og einnig koma upp góðu leikskipulagi,“ segir Andri Þór.

„Við erum þakklát fyrir að vera hérna og hlökkum mikið til að byrja mótið. Áfram Ísland!“

Íslenska liðið náði sínum besta árangri á mótinu í fyrra þegar þær enduðu jafnar í 16. sæti. Þá skipuðu Bryndís Eva, Eva Kristinsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir lið Íslands.

Ísland lauk mótinu á 25 höggum yfir pari. Eva náði bestum árangri íslensku keppendanna í einstaklingskeppninni og varð jöfn í 28. sæti á sex höggum yfir pari.

Til mikils er að vinna í einstaklingskeppninni því sigurvegarinn fær keppnisrétt á CPKC Women’s Open á LPGA-mótaröðinni árið 2027. Fyrsti hringur mótsins hefst í dag og lýkur mótinu laugardaginn 3. október.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ