GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Kvennasveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar tekur þátt í Evrópumóti golfklúbba, European Ladies’ Club Trophy, sem fer fram dagana 1.-3. október á Falkenstein velli Hamburger Golf Club í Hamborg í Þýskalandi. Alls eru 19 lið skráð til leiks og hefst mótið á morgun, fimmtudag.

Fyrir hönd GM keppa:

  • Arna Rún Kristjánsdóttir
  • Kristín Sól Guðmundsdóttir
  • Katrín Sól Davíðsdóttir

Þær skipa þriggja manna sveit GM sem mætir meistaraliðum víðs vegar að úr Evrópu.

GM tryggði sér þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki í ágúst. Íslandsmótið fór fram á heimavelli liðsins, Hlíðavelli, þar sem GM sigraði Golfklúbb Akureyrar í úrslitaleik, 3.5-1.5. Þetta var fjórði Íslandsmeistaratitill kvennasveitar GM á síðustu fimm árum.

Á Evrópumótinu eiga landsmeistarar golfklúbba frá aðildarlöndum Evrópska golfsambandsins rétt á þátttöku. Auk þeirra geta ríkjandi Evrópumeistarar og gestgjafaklúbburinn sent lið til leiks.

Leiknar eru 54 holur í höggleik, einn 18 holu hringur á hverjum keppnisdegi. Allir þrír kylfingar hverrar sveitar leika daglega og tvö bestu skor liðsins telja í hverri umferð. Að þremur dögum loknum eru því sex skor lögð saman og sú sveit sem hefur lægsta heildarskorið stendur uppi sem Evrópumeistari.

Hér má nálgast rástíma og stöðu mótsins

Falkenstein völlurinn þykir einstaklega flottur, en hann hefur verið nefndur besti völlur Þýskalands og ellefti besti völlur Evrópu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ