GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Haraldur Franklín
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús hefur leik í Abu Dhabi Challenge á HotelPlanner Tour á miðvikudag. Leikið verður á Al Ain Equestrian, Shooting & Golf Club í Sameinuðu arabísku furstadæmunum dagana 30. september til 3. október.

Mótið er síðasta tækifæri kylfinga til þess að tryggja sér sæti í lokaspretti HotelPlanner Tour. Að mótinu loknu halda 68 efstu menn stigalistans áfram í tvö mót í Kína áður en lokamót tímabilsins fer fram á Mallorca.

Haraldur er í 148. sæti stigalistans fyrir mótið með 77,6 stig.

Haraldur á rástíma kl. 08:00 að staðartíma, sem er kl. 04:00 að íslenskum tíma, á fyrsta keppnisdegi. Hann hefur leik á 10. teig ásamt Ryan Lumsden frá Skotlandi og Anders Emil Ejlersen frá Danmörku.

Aðstæður verða töluvert frábrugðnar því sem Haraldur og flestir evrópsku kylfingarnir eiga að venjast. Mikill hiti hefur verið á Al Ain-svæðinu undanfarna daga og verður hitinn áfram stór þáttur í mótinu.

Hitinn hefur farið vel yfir 40 gráður yfir heitasta hluta dagsins og því gæti rástíminn reynst okkar manni gagnlegur.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ