GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Emil Nielsen hefur byrjað háskólatímabilið af miklum krafti með liði Santa Clara University í Kaliforníu. Hann hefur leikið þrjú mót á tímabilinu 2026-2027 og endað í fjórða, öðru og þriðja sæti. Um síðustu helgi varð hann þriðji á William H. Tucker Invitational í Nýju-Mexíkó eftir að hafa verið í forystu fyrir lokahringinn.

Emil hóf tímabilið á Bomb Darts Birds Collegiate í Arizona dagana 7.-8. september. Þar lék hann hringina þrjá á 67, 69 og 66 höggum og lauk keppni á 14 undir pari, jafn í fjórða sæti. Lokahringurinn var sérstaklega sterkur: Emil lék hann á sex höggum undir pari og átti þátt í því að Santa Clara vann liðakeppnina á 50 höggum undir pari, besta 54 holu skori í sögu skólaliðsins.

Viku síðar náði Emil sínum besta árangri til þessa í háskólamóti þegar hann varð annar á Canadian Collegiate Invitational í Ontario. Mótið fór fram á Oviinbyrd Golf Course og lék Emil hringina á 70, 68 og 70 höggum, eða fimm undir pari. Hann átti eftirminnilegan lokahring: Eftir að hafa verið fjórum höggum yfir pari á fyrri níu holunum lék hann seinni níu á fimm höggum undir pari. Fuglapútt á lokaholunni tryggði honum annað sætið, einu höggi á eftir sigurvegaranum, en sigurvegari mótsins vann sér inn þátttökurétt á RBC Canadian Open mótinu á PGA mótaröðinni.

Þriðja mótið, William H. Tucker Invitational, fór fram í Albuquerque dagana 25.-26. september. Emil lék fyrsta hringinn á 66 höggum og lék síðan annan hringinn á 64 höggum, átta undir pari. Á þeim hring fékk hann tíu fugla og tók þriggja högga forystu í einstaklingskeppninni fyrir lokahringinn. Þar lék Emil á 75 höggum og endaði í þriðja sæti á ellefu undir pari.

Emil er á þriðja ári hjá Santa Clara og hefur nú verið í efstu fimm sætunum í öllum þremur mótum haustsins. Frábært byrjun á tímabilinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ