/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson (GR) og Ingvar Andri Magnússon (GKG) eru úr leik á Opna breska áhugamannamótinu 18 ára og yngri.

Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót í heimi og voru keppendur alls 252. Leikið er á Royal Portrush og Portstewart völlunum rétt norðan við Belfast á Norður-Írlandi.

Opna breska meistaramótið fer fram á Royal Portrush á næsta ári og Opna írska meistaramótið á Evrópumótaröð karla fer fram árlega á Portstewart.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leikinn er höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana. Keppendur leika báða vellina og komast 64 efstu áfram í holukeppni.

Dagbjartur lék á +12 samtals (78-77) 155 högg og endaði hann í 140. sæti.

Ingvar Andri lék á +15 samtals (81-77) 158 högg og endaði hann í 187. sæti.

Dagbjartur og Ingvar Andri léku á Royal Portrush á fyrri keppnisdeginum og Portstewart á síðari keppnisdeginum.

Þeir sem léku á +6 eða betur komust í 64 manna úrslit mótsins.

Skor keppenda er uppfært hér:

Nánari upplýsingar um mótið eru hér:

Þetta mót á sér langa sögu eða allt frá árinu 1921. Margir þekktir kylfinga hafa tekið þátt.  Ronan Rafferty (1979), Jose Maria Olazabal (1983) og Sergio Garcia (1997) hafa m.a. sigrað á þessu móti.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ