/

Deildu:

Auglýsing

Hulda Clara Gestsdóttir fór upp um 25 sæti á heimslista áhugakylfinga í þessari viku. Hún er í sæti nr. 351 sem er besti árangur hennar á listanum. Hulda Clara sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á háskólamóti í Bandaríkjunum í lok apríl en Íslandsmeistarinn frá árinu 2021 leikur með Denver háskólaliðinu.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022 og Evrópumeistari unglinga 2022, er í sæti nr. 348 á heimslistanum en hún hefur farið hæst í sæti nr. 234 á þessum lista. Perla Sól keppir fyrir GR en hún hefur samið við eitt sterkasta háskólaliðið í bandaríska kvennagolfinu , LSU , frá og með haustinu 2025.

Andrea Bergsdóttir, sem keppir með Colarado háskólanum er í sæti nr. 241 á þessum lista. Hún sigraði á sínu fyrsta háskólamóti í Bandaríkjunum nýverið en mótið sem hún vann var mjög sterkt. Hún fór upp um 279 sæti eftir sigurinn en aldrei áður hefur íslensk kona fengið jafnmörg stig eftir sigur á móti fyrir áhugakylfinga.

Nánar hér á heimslistanum: www.wagr.com

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ