Auglýsing

Geðsveifan 2024 er golf viðburður til styrktar Geðhjálpar. Markmiðið er að vekja athygli á Geðheilbrigði og mikilvægi þess að stunda íþróttir, útivist og bæta félagslega heilsu.

Guðmundur Hafþórsson mun spila Golf í 24 tíma á vellinum, 5 hringi og munu einstaklingar og fyrirtæki hafa tækifæri á að taka þátt í þessum frábæra viðburði (litla móti). Golfklúbburinn Oddur og Golfsamband Íslands hafa tekið höndum saman með Guðmundi í að gera þennan viðburð að veruleika.

Hér fyrir neðan er viðtal við Guðmund í hlaðvarpsþætti GSÍ.

Það verða möguleikar á að spila með í þessum 5 hringum. Það verða 3 styrktar rástímar í gangi 5x yfir þessa 24 tíma samtals um 55 pláss.

Hér er hægt að styrkja beint https://www.styrkja.is/gedsveiflan

Nánar á fésbókarsíðu viðburðarins – smelltu hér:

Einnig verða aðrar styrktarleiðir í boði en það verður kynnt betur þegar nær dregur.

Golf íþróttin er frábær íþrótt fyrir andlega heilsu. Tækifæri til að kúpla sig útúr stressi daglegs lífs, vera úti í náttúruinni í góðum félagsskap í næði frá netheimum og símum.

Við hvetjum alla til að fylgjast vel með, fylgja viðburðinum og taka þátt í því að styrkja gott málefni.



advanced divider

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ