Auglýsing

Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár.

Fyrirlestrar verða 13., 15., 19. og 21. febrúar 2024, kl. 19:30 – 22:00.

Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.

Við skráningu verður boðið upp á að velja hvort óskað sé eftir fræðslu á netinu eingöngu, eða hvort áhugi sé að sækja námskeiðið í sal ÍSÍ.

Ef næg þátttaka fæst í sal mun það verða kynnt nánar þegar líður á skráninguna.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að menn sitji námskeiðið.

Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.

Það er þó ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið.
Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið til að geta sent viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið.

Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.

Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs, ásamt því hvort óskað er eftir kennslu í sal.).

Dómaranefndin vill skora á forráðamenn golfklúbba að ræða við þá félaga sem þeir telja að gætu haft áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu og hvetja þá til að afla sér dómararéttinda.

Kveðja,
Dómaranefnd GSÍ

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ