Auglýsing

Fjórir keppendur frá Íslandi taka þátt á European Young Masters sem fram fer á Linna golfvellinum í Finnlandi. Mótið er fyrir kylfinga sem eru 16 ára og yngri.

Keppendur Íslands eru Skúli Gunnar Ágústsson, GA – Veigar Heiðarsson, GA – Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Helga Signý Pálsdóttir. Skúli er með 1 í forgjöf, Veigar 1,1, Helga Signý 1,7 en Perla Sól er með lægstu forgjöfina af íslensku keppendunum eða -3,5.

Keppt er í einstaklings – og liðakeppni. Leiknir eru þrír keppnishringir á þremur keppnisdögum í þar sem að keppt er í höggleik. Í liðakeppninni telja þrjú bestu skorin hjá hverju liði á hverjum hring.

Mótið er gríðarlega sterkt og eru yfir 70 keppendur með 0 eða lægri forgjöf. Lægsta forgjöfin er -5 og 30 keppendur eru með -3 eða lægra í forgjöf á þessu móti.

Alls eru 117 keppendur á þessu móti og koma þeir frá 31 þjóðum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Finnlandi.

1 keppnisdagur:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ