/

Deildu:

Auglýsing

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbburinn Oddur og Golfklúbbur Reykjavíkur hafa ákveðið í samráði við GSÍ að halda þrjú golfmót fyrir afrekskylfinga í sumar.

Tilgangur mótanna er að skapa frekari vettvang fyrir keppni afrekskylfinga á Íslandi og munu mótin gilda á heimslista áhugamanna (WAGR).

Hámarksfjöldi keppenda verður 30 og leiknar verða 54 holur á 2-3 dögum.

Mótin er einungis ætluð áhugakylfingum og gilda sömu forgjafarmörk og í stigamótum GSÍ, þ.e. 5,5 hjá körlum og 8,5 hjá konum.

Mótin þrjú verða:

  1. Heimslistamót GKG, 17. – 18. maí.
  2. Heimslistamót GO, 23. – 24. ágúst.
  3. Heimslistamót GR, 13. – 15. september.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ