Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands. Mynd/Hari.
Auglýsing

Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, mun ekki sækjast eftir endurkjöri á Golfþingi sem fram fer þann 20. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hauki Erni.

Árið 2001 réði ég mig til starfa hjá Golfsambandi Íslands, hvar ég starfaði með háskólanámi. Ég tók sæti í stjórn golfsambandsins árið 2005 og var kjörinn forseti þess árið 2013. Ég hef því starfað fyrir golfsambandið í 20 ár, setið í stjórn þess í 16 ár og verið forseti í átta ár.


Eftir að hafa starfað næstum hálfa ævina fyrir Golfsamband Íslands, hef ég tekið þá ákvörðun að láta staðar numið. Ég mun því ekki sækjast eftir endurkjöri á Golfþingi þann 20. nóvember næstkomandi.

Þetta hefur verið æðislegur tími og ég hef notið hverrar mínútu. Í störfum mínum fyrir íslenskt golf hef ég kynnst ótal manns og eignast vini til lífstíðar. Þá hafa störf mín leitt mig áfram á alþjóðlegar brautir golfíþróttarinnar, sem ég hef enn ekki sagt skilið við. Fyrir allt þetta verð ég ævinlega þakklátur.

Ég er afar stoltur af þeirri vinnu sem ég, stjórnir sambandsins og starfsfólk höfum skilað af okkur á þessum tveimur áratugum og ég veit að golfsambandið er á góðum stað í dag. Golfíþróttin hefur aldrei staðið styrkari fótum og hvert sem litið er, þá nýtur íþróttin sögulegrar velgengni. Mér finnst þetta því vera góður tímapunktur til að láta af störfum og fela nýjum aðilum verkefnið. Ég hlakka til að fylgjast með íþróttinni dafna af hliðarlínunni.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ