Íþróttahreyfingin og covid
Auglýsing

Þann 20. október tóku við nýjar reglur um samkomutakmarkanir og munu þær gilda til og með 17. nóvember.

Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 500 í 2000 manns. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki með í fjöldatölu.
  • Heimilt verður að hafa allt að 2000 manns í hverju rými á æfingum og í keppnum fullorðinna.
  • Heimilt verður að hafa allt að 2000 manns í hverju rými í áhorfendasvæðum.
  • Heimilt verður að hafa ótakmarkaðan fjölda áhorfenda ef allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst.
  • Skráningarskylda fellur úr gildi og því munu viðburðarhaldarar ekki lengur þurfa að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu.
  • Almennt mun 1 metra nálægðarregla ennþá gilda nema á sitjandi viðburðum og á viðburðum þar sem hraðpróf eru notuð.
  • Grímuskylda fellur úr gildi en þó er mælt með því að fólk noti grímur þar sem ekki verður hægt að viðhafa 1 metra fjarlægð frá ótengdum aðilum.
  • Áfram er mikilvægt að huga vel að sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum, loftræstingu og persónubundnum sóttvörnum. Einnig er vert að minna á leiðbeiningar frá embætti landlæknis og almannavörnum um smitrakningu í íþróttahreyfingunni sem má nálgast hér.

Reglur þessar gilda frá og með 20. október 2021 og þar til annað verður tilkynnt.

Reglur þessar öðlast gildi 20. október 2021 og gilda til og með 17. nóvember 2021 eða þar til breyting verður á reglugerð heilbrigðisráðherra frá 19. október um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Æfingar og keppni eru heimilaðar með þeim takmörkunum sem reglur þessar setja.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ