Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, keppa báðir í þessari viku á Challenge de España mótinu sem fram fer dagana 7.-10. september á Club de Golf Playa Serena við Almería á Spáni.

Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Haraldur Franklín hefur leikið á 11 mótum á tímabilinu og er hann í 120. sæti á stigalistanum. Hann endaði í 24. sæti í síðustu viku á móti sem fram fór í Svíþjóð.

Besti árangur hans á tímabilinu er 19. sætið á móti sem fram fór um miðjan júní. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á átta mótum af alls ellefu á tímabilinu.

Guðmundur Ágúst er með keppnisrétt á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Þar hefur hann leikið á 20 mótum á þessu tímabili.

Guðmundur Ágúst kemst ekki inn á keppendalistann á DP World Tour í þessari viku. Mótið á Spáni verður fimmta mót hans á tímabilinu á Áskorendamótaröðinni.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ