Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, er á meðal keppenda á Borre Open sem fram fer í Danmörku. Mótið er hluti af Nordic Tour atvinnumótaröðinni.
Haraldur Franklín lék fyrsta hringinn á -2 og er hann í 27. sæti. Haraldur Franklín fékk alls fimm fugla á hringnum og þrjá skolla. Efsti kylfingurinn er á -8 eftir fyrsta hringinn.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-07-24-at-8.56.32-AM-1024x427.png)
Hákon Harðarson, sem keppir fyrir danska golfklúbbinn Royal, er einnig á meðal keppenda. Hann lék á +15 eða 88 höggum, en Hákon keppir fyrir GR hér á Íslandi.