Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, hefur leik í dag á UAE Challenge mótinu sem fram fer á
Saadiyat Beach vellinum í Abu Dabí – Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, Challenge Tour, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Þetta er fyrsta mótið á tímabilinu á Challenge Tour hjá Haraldi Franklín.

Haraldur Franklín var á biðlista fyrir mótið og komst hann inn á keppendalistann á síðustu stundu. Hann nýtti tækifærið og flaug frá Spáni til Abu Dabí í gær og mætir því til leiks án þess að hafa leikið æfingahring á þessum golfvelli.

Haraldur Franklín hefur leik kl. 8:15 í dag að íslenskum tíma eða 12:15 að staðartíma í Abu Dabí. Á föstudaginn hefur Haraldur Franklín leik kl. 3:15 aðfaranótt föstudags að íslenskum tíma eða 7:15 staðartíma í Abu Dabí.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á UAE Challenge:

Furstadæmin eru Abú Dabí, Adsman, Dúbæ, Fúdsaíra, Ras al-Kaíma, Sjarja og Úmm al-Kúvaín. Þau eiga landamæri að Sádí-Arabíu og Óman og strönd að Persaflóa.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ