Auglýsing

Þrír keppendur frá Íslandi taka þátt á Golfkusten Blekinge mótinu sem er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni.

Mótið fer fram í Svíþjóð og er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Svíþjóð.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Íslensku keppendurnir eru Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK og Bjarki Pétursson, GKG.

Á stigalistanum er Axel í 13. sæti en hann hefur leikið á alls fimm mótum á þessu tímabili, Andri Þór hefur leikið á fimm mótum og er í 73. sæti á stigalistanum. Bjarki hefur leikið á þremur mótum og er í 79. sæti á stigalistanum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ