Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, fór upp um 73 sæti á heimslista atvinnukylfinga sem uppfærður er vikulega. Haraldur Franklín er í sæti nr. 666 á heimslistanum en hann var í sæti nr. 739 í síðustu viku. Í lok ársins 2019 var Haraldur Franklín í sæti nr. 599.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er efstur af íslensku karlkylfingunum á heimslista atvinnukylfinga. Hann er í sæti nr. 558 en hann var í sæti nr. 552 í lok ársins 2019.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur komist hæst allra íslenskra karlkylfinga á heimslista atvinnukylfinga. Birgir Leifur fór hæst í sæti nr. 415 árið 2017 eftir að hann sigraði á móti á Áskorendamótaröðinni í Frakklandi.

Staða íslenskra kylfinga á heimslistanum er hér:

Heimslistinn í heild sinni er hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ