Haraldur Franklín og Kristjana Arnarsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, náði góðum árangri á Empordà Challenge mótinu sem fram fór á Spáni. Mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu í karlaflokki.

Haraldur Franklín lék hringina fjóra á 13 höggum undir pari vallar (68-71-64-68) en sigurvegarinn lék á 18 höggum undir pari samtals. Haraldur Franklín endaði í 10. sæti á þessu móti. Þetta er þriðji besti árangur hans á Áskorendamótaröðinni – en hann er hefur einu sinni endað í 2. sæti og næst besti árangur hans er 8. sæti.

Þriðji keppnisdagurinn hjá Haraldi Franklín var eftirminnilegur – þar sem hann fékk alls 9 fugla og þar af fimm í röð á fyrstu fimm holunum.

Haraldur Franklín er í harðri baráttu um að komast í hóp 45 efstu á stigalista Challenge Tour og tryggja sér þar með keppnisrétt á lokamótinu.

Haraldur Franklín er í 46.sæti og fór hann upp um fjögur sæti á stigalistanum eftir að hafa endað í 10. sæti á mótinu sem lauk í dag. Hann hefur hæst farið í sæti nr. 38. Besti árangur hans á tímabilinu er 2. sætið á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst.

Nánar um mótið – rástímar, staða úrslit.

Að þessu móti loknu er aðeins eitt mót eftir á keppnistímabilinu fyrir lokamótið sem fram fer á Mallorca í nóvember. Næst síðasta mótið fer einnig fram á Empordà vellinum og hefst það strax á þriðjudaginn – þar sem að leiknir verða fjórir keppnishringir. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, verður einnig á meðal keppanda á næsta móti.

Lokamótið fer síðan fram dagana 4.-7. nóvember á T-Golf & Country Club á Mallorca en þangað komast 45 efstu á stigalista Áskorendamótaraðarinnar.

Það er að miklu að keppa á lokamótinu á Mallorca. Þar tryggja 20 efstu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni og þeir sem eru í sætum 21.-45. fá takmarkaðan keppnisrétt á stærstu atvinnumótaröð Evrópu.

Aðeins tveir íslenskir kylfingar hafa náð að komast inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni, Birgir Leifur Hafþórsson árið 2017 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst inn í fyrra. Birgir Leifur endaði í 35. sæti á stigalistanum árið 2017 þar sem hann sigraði á einu móti, fyrstur íslenskra kylfinga. Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti í fyrra.

Í upphafi ársins var Haraldur Franklín í sæti nr. 102 á stigalistanum en hann hefur leikið á 17 mótum á Áskorendamótaröðinni á tímabilinu. Í fyrra endaði Haraldur Franklín í 85. sæti á stigalistanum og besti árangur hans var 14. sæti.

Guðmundur Ágúst er í 85. sæti á stigalistanum á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur hans á tímabilinu er 8. sæti á B-NL mótinu sem fram fór Hollandi í lok ágúst. Á þessu tímabiliu hefur Guðmundur Ágúst leikið á 17 mótum á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á mótinu sem nú stendur yfir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ