Auglýsing

Þrír kylfingar frá Íslandi taka þátt á 2. stigi úrtökumótsins fyrir DP World atvinnumótaröðina – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Alls er keppt á fjórum keppnisvöllum á 2. stigi úrtökumótsins og eru allir vellirnir á Spáni. Keppni hefst á öllum völlunum 2. nóvember og eru leiknir fjórir 18 holu hringir á fjórum keppnisdögum.

Það má gera ráð fyrir að á hverjum velli fyrir sig komist 23-24 efstu keppendurnir áfram á lokaúrtökumótið sem fram fer á Infinitum Golf (Lakes & Hills) við borgiuna Tarragona á Spáni 10.-15. nóvember.

Á lokaúrtökumótinu keppa 156 kylfingar og fá 25 efstu kylfingarnir keppnisrétt á DP World Tour á næsta tímabili.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour í fyrra á lokaúrtökumótinu – en hann náði ekki að halda keppnisrétti sínum eftir þetta tímabil og er á meðal keppenda á 2. stigi úrtökumótsins.

Guðmundur Ágúst keppir á Desert Springs vellinum sem er ekki langt frá borginni Almería. Golfvöllurinn er þekkt stærð á Íslandi og fjömargir íslenskir kylfingar hafa leikið á Desert Springs í golfferðum á undanförnum árum. Guðmundur Ágúst er að keppa á úrtökumótinu fyrir DP World Tour í sjötta sinn frá árinu 2016 þegar hann tók fyrst þátt.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Desert Springs:

Árangur Guðmundar er eftirfarandi á úrtökumótinu fyrir DP World Tour:

2016: Féll úr leik á 2. stigi.
2017: Féll úr leik á 1. stigi.
2018: Féll úr leik á 1. stigi.
2019: Féll úr leik á lokaúrtökumótinu, 3. stigi.
2020: Ekki keppt vegna Covid.
2021: Ekki keppt vegna Covid.
2022: Tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour á lokaúrtökumótinu, 3. stigi.

Axel Bóasson keppir á Isla Canela Links vellinum við borgina Huelva. Axel tryggði sér nýverið keppnisrétt á Challenge mótaröðinni, Áskorendamótaröðinni, með því að vera á meðal 5 efstu á stigalista Nordic Tour League mótaraðarinnar. Þetta er í annað sinn sem Axel nær að tryggja sér keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki.

Þetta er í sjöunda sinn sem Axel reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir DP World Tour. Hann fór beint inn á 2. stig úrtökumótsins vegna stöðu sinnar á stigalista Nordic Tour League. Axel hefur einu sinni áður leikið á 2. stigi úrtökumótsins en hann féll úr leik á 2. stiginu árið 2017.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Canela Links:

Árangur Axels er eftirfarandi á úrtökumótinu fyrir DP World Tour:

2014: Féll úr leik á 1. stigi.
2015: Féll úr leik á 1. stigi.
2016: Féll úr leik á 1. stigi.
2018: Féll úr leik á 2. stigi.
2019: Féll úr leik á 1. stigi.
2020: Ekki keppt vegna Covid.
2021: Ekki keppt vegna Covid.
2022: Féll úr leik á 1. stigi

Haraldur Franklín Magnús keppir á Fontanals vellinum við borgina Girona.

Haraldur Franklín lék á Challenge Tour mótaröðinni á þessu tímabili en hann náði ekki að komast í hóp 45 efstu á stigalistanum – sem hefði tryggt sæti á lokamótinu þar sem að keppt erum 20 sæti á DP World Tour. Haraldur Franklín er að keppa í sjötta sinn á úrtökumótinu fyrir DP World Tour. Hann fór í gegnum 1. stig úrtökumótsins í október. Haraldur hefur ávallt komist í gegnum 1. stig úrtökumótins þegar hann hefur leikið á því.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Fontanals:

Árangur Haralds Franklíns er eftirfarandi á úrtökumótinu fyrir DP World Tour:

2016: Féll úr leik á 2. stigi.
2017: Féll úr leik á 2. stigi.
2018: Féll úr leik á 2. stigi.
2019: Féll úr leik á 2. stigi.
2020: Ekki keppt vegna Covid.
2021: Ekki keppt vegna Covid.
2022: Féll úr leik á 2. stigi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ