GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Haraldur Franklín
Auglýsing

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 25. sæti á German Challenge powered by VcG mótinu á HotelPlanner Tour mótaröðinni. Mótið fór fram dagana 9.-12. júlí á Wittelsbacher Golfclub vellinum í Þýskalandi.

Hér má sjá úrslit mótsins

Haraldur lék hringina fjóra á 70, 71, 70 og 68 höggum og lauk leik á samtals níu höggum undir pari.

Scorecard for Haraldur Magnus showing hole-by-hole results (R1–R4) with pars, over/under to par, and final totals on the right.
Hringir Haralds

Haraldur lék fyrstu tvo hringina á tveimur höggum undir pari og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn.

Á þriðja hringnum lék Haraldur aftur á 70 höggum. Hann fékk fjóra fugla og tvo skolla og var fimm höggum undir pari fyrir lokahringinn.

Haraldur átti sinn besta hring í mótinu á lokadeginum þegar hann lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Hann fékk fugla á 4., 8., 12. og 15. holu og var skollalaus á hringnum.

Haraldur fór upp um 14 sæti á lokadeginum og lauk keppni jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari.

Flott spilamennska hjá Haraldi sem náði með þessu sínum besta árangri á tímabilinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ