Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, keppir á Helsingborg Open mótinu sem fram fer á Allerum golfvellinum í Svíþjóð dagana 2.-4. júní.

Mótið hefst föstudaginn 2. júní og er það hluti af LET Evrópumótaröðinni, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Leiknar verða 54 holur á þremur keppnisdögum og er heildarverðlaunaféð á mótinu 300 þúsund Evrur. Par vallar er 72 og er heildarlengd vallar 5.800 metrar.

Þetta er fjórða mótið á tímabilinu hjá Guðrúnu Brá á LET Evrópumótaröðinni.

Hún endaði í 61. sæti á móti í Hollandi í síðustu viku þar sem hún lék á 219 höggum (+3) (72-74-73).

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá Helsingborg Open.

Guðrún Brá hefur leik á 10. teig kl. 11:45 að íslenskum tíma eða 13:45 að staðartíma í Svíþjóð.

Tvesa Malik frá Indlandi og Lauren Taylor frá Englandi eru með þrefalda Íslandsmeistaranum í ráshóp.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ