Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, sigraði í dag á Svea Leasing Open atvinnumannamótinu sem fram fór hjá Täby Golfklubb í Svíþjóð. Mótið er hluti af Nordic Tour atvinnumótaröðinni.

Þetta var þriðji sigur hans á mótaröðinni á þessu tímabili og tryggði hann sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni út þetta tímabil og á því næsta.

Guðmundur Ágúst lék hringina þrjá á -16 (66-67-67) 200 högg



Haraldur Franklín Magnús, GR komst ekki í gegnum niðurskurðinn á þessu móti á pari vallar samtals eftir 36 holur, 74-70 (144 högg).
Axel Bóasson úr GK var á sama skori eða pari vallar, 73-71. og deild því sama sæti og Haraldur Franklín.

Andri Björnsson úr GR lék á 72-78 og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Aron Bergsson, sem hefur keppt fyrir GKG, komst í gegnum niðurskurðinn á -1 samtals (76-67) en hann leikur fyrir sænska golfklúbbinn S:t Jörgen Park í Svíþjóð. Aron er bróðir Andreu Bergsdóttur sem leikur með íslenska kvennalandsliðinu á EM áhugakylfinga á Spáni þessa stundina.


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ