Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Auglýsing

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2019.

Þeir eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.

Þetta er í 22. skipti þar sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í þriðja sinn sem Valdís Þóra fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst fær þessa viðurkenningu.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson:

Guðmundur Ágúst, sem er 27 ára, varð Íslandsmeistari í höggleik á árinu í fyrsta skipti. Hann lék á Nordic Golf League atvinnumannamótaröðinni þar sem hann sigraði á þremur mótum og vann sér um leið þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð í Evrópu. Hann komst inn á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur hóf árið í 1656. sæti á heimslista atvinnumanna en er nú efstur Íslendinga í 558. sæti.


Valdís Þóra Jónsdóttir:

Valdís Þóra, sem er þrítug, er kylfingur ársins í þriðja sinn. Hún lék sitt þriðja tímabil á Evrópumótaröðinni í golfi og endaði tímabilið í 71. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Valdís náði sínum besta árangri í Ástralíu í mars þegar hún lenti í 5. sæti. Valdis var lengi vel í forystu í mótinu en hún lék á 63 höggum á fyrsta hring, sem var besta skor mótsins. Valdís komst í gegnum niðurskurðinn á 7 mótum af 14 á Evrópumótaröðinni á árinu. Hún komst inn á 2. stig úrtökumótsins fyrir LPGA atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum og verður með takmarkaðan keppnisrétt á Symetra atvinnumótaröðinni á næsta tímabili.


Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins. Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viðurkenningu hjá konunum eða alls sex sinnum.

Kylfingar ársins frá upphafi:

1973Björgvin ÞorsteinssonGA1
1974Sigurður ThorarensenGK1
1975Ragnar ÓlafssonGR1
1976Þorbjörn KjærboGS1
1977Björgvin ÞorsteinssonGA2
1978Gylfi KristinssonGS1
1980Hannes EyvindssonGR1
1981Ragnar ÓlafssonGR2
1982Sigurður Pétursson GR1
1983Gylfi KristinssonGS2
1984Sigurður Pétursson GR2
1985Sigurður Pétursson GR3
1986Úlfar Jónsson GK1
1987Úlfar Jónsson GK2
1988Úlfar Jónsson GK3
1989Úlfar Jónsson GK4
1990Úlfar Jónsson GK5
1991Karen Sævarsdóttir GS1
1992Úlfar Jónsson GK6
1993Þorsteinn Hallgrímsson GV1
1994Sigurpáll Geir Sveinsson GA1
1995Björgvin Sigurbergsson GK1
1996Birgir Leifur Hafþórsson GL1
1997Birgir Leifur Hafþórsson GL2
1998Björgvin Sigurbergsson GK2Ragnhildur Sigurðardóttir GR1
1999Örn Ævar HjartarsonGS1Ólöf María Jónsdóttir GK1
2000Björgvin Sigurbergsson GK 3Ragnhildur SigurðardóttirGR2
2001Örn Ævar HjartarsonGS2Herborg ArnardóttirGR1
2002Sigurpáll Geir SveinssonGA2Ólöf María JónsdóttirGK2
2003Birgir Leifur HafþórssonGKG3Ragnhildur SigurðardóttirGR3
2004Birgir Leifur HafþórssonGKG4Ólöf María Jónsdóttir GK3
2005Heiðar Davíð BragasonGKj.1Ólöf María Jónsdóttir GK4
2006Birgir Leifur HafþórssonGKG5Nína Björk GeirsdóttirGKj.1
2007Birgir Leifur HafþórssonGKG6Nína Björk GeirsdóttirGKj.2
2008Hlynur Geir Hjartarson GOS1Ólöf María Jónsdóttir GK5
2009Ólafur Björn LoftssonNK1Valdís Þóra Jónsdóttir GL1
2010Birgir Leifur Hafþórsson GKG7Tinna Jóhannsdóttir GK1
2011Ólafur Björn LoftssonNK1Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR1
2012Haraldur Franklín Magnús GR1ÓIafía Þórunn Kristinsdóttir GR2
2013Birgir Leifur Hafþórsson GKG8Sunna Víðisdóttir GR1
2014Birgir Leifur Hafþórsson GKG9Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR3
2015Birgir Leifur Hafþórsson GKG10Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR4
2016Birgir Leifur Hafþórsson GKG11Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR5
2017Axel Bóasson GK1Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR6
2018Haraldur Franklín Magnús GR2Valdís Þóra Jónsdóttir GL 2
2019Guðmundur Ágúst KristjánssonGR1Valdís Þóra Jónsdóttir GL3

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ