Guðmundur Ágúst og Andri Þór.
Auglýsing

Fimm íslenskir atvinnukylfingar taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi á þessu hausti. Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson, báðir úr GR, léku á Frilford Heath vellinum á Englandi, og lauk keppni í dag.

Þeir enduðu báðir á +3 samtals og það skilaði þeim í 40. sæti. Þeir voru fjórum höggum frá því að komast í hóp þeirra sem komust áfram á 2. stigið. Alls komust 27 keppendur áfram af þessum velli.

Þetta er í þriðja sinn sem þeir reyna fyrir sér á úrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Árið 2016 komust þeir báðir í gegnum 1. stigið en féllu úr leik á 2. stiginu. Í fyrra náðu þeir ekki að komast í gegnum 1. stigið.

Andri Þór (79-71-67-74)
Guðmundur Ágúst (71-72-73-75)

 

Skor keppenda er uppfært hér:

Nánar um mótið á Englandi hér:

Keppt er á átta mismunandi stöðum í Evrópu á 1. stig úrtökumótsins.

Um 700 kylfingar taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins og um 25% þeirra komast inn á 2. stigið. Þeir sem komast í gegnum 2. stig úrtökumótsins keppa síðan á lokaúrtökumótinu í nóvember.

Nánar má lesa um úrtökumótin hér. 

Ólafur Björn Loftsson (GKG) og Haraldur Franklín Magnús (GR) kepptu í Austurríki og fór það mót fram dagana 18.-21. september. Keppnin fór fram á Golf Club Schloss Ebreichsdorf. Haraldur Franklín komst í gegn og leikur á 2. stigi úrtökumótsins en Ólafur Björn er úr leik.

Nánar um mótið í Austurríki hér:

Andri Þór Björnsson (GR) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) keppa á Englandi dagana 25.-28. september. Keppnin fer fram á Frilford Heath vellinum.

Nánar um mótið á Englandi hér:

Axel Bóasson (GK) keppir í Portúgal dagana 9.-12. október.  Keppt er á Bom Sucesso, Óbidos vellinum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ