Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, er á meðal keppenda á DP World móti sem fram fer í Þýskalandi dagana 1.-4. júní 2023.

Mótið heitir Porsche European Open og fer fram á Green Eagle vellinum í Hamborg, Þýskalandi.

Nánari upplýsingar um mótið í Þýskalandi, rástímar og staða – smelltu hér:

DP World Tour er sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki. Guðmundur Ágúst tryggði sér keppnisrétt á DP World Tour s.l. haust á lokaúrtökumótinu.

Sýnt er frá mótinu á VIAPLAY.


Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á þrettán mótum á DP World Tour. Hann komst í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum í röð sem er besti árangur sem íslenskur karlkylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki í Evrópu.

Hann hefur nú fengið alls 37 stig og er í sæti nr. 204 á stigalistanum. Alls eru 281 keppendur á stigalistanum.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst fengið tæplega 23 þúsund Evrur í verðlaunafé eða sem nemur 3,6 milljónum kr.

Besti árangur hjá íslenskum kylfingi á DP World Tour er 11. sætið. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð í 11. sæti á Telecom Italia Open sem fram fór í maí árið 2007.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ