Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, GR, er á meðal keppenda sem hefja leik fimmtudaginn 25. maí á Copenhagen Challenge mótinu sem fram fer á Royal Golf Club í Kaupmannahöfn í Danmörku.

Mótið er hluti af Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Mótið í Danmörku er þriðja mót tímabilsins hjá Haraldi Franklín á mótaröðinni. Hann endaði í 25. sæti á UAE Challenge mótinu sem fram fór á Saadiyat Beach vellinum í Abu Dabí – Sameinuðu arabísku furstadæmunum nýverið. Þar lék Haraldur Franklín á -4 samtals (74-69-73-68). Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti sem fram fór í Hollandi í síðustu viku.

Þetta er eins og áður segir þriðja mótið á tímabilinu á Challenge Tour hjá Haraldi Franklín.
Hann hefur leikið á 49 mótum á þessari mótaröð frá árinu 2018. Besti árangur hans er 2. sætið og hann hefur einnig endað í þriðja sæti.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit Copenhagen Challenge mótinu:

Haraldur Franklín er með Gary Boyd frá Englandi og Norðmanninum Elias Bertheussen í ráshóp fyrstu tvo hringina. Þeir hefja leik kl. 12:00 að íslenskum tíma á fimmtudaginn. Á öðrum keppnisdegi hefja þeir leik kl. 7:00 að íslenskum tíma.

Haraldur Franklín Magnús. Mynd/Grímur Kolbeinsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ