Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/KÁ
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur leikið tvo hringi á Magical Kenya Open mótinu sem er hluti af DP World Tour sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Nánari upplýsingar um mótið í Kenýa, rástímar og staða – smelltu hér:

Guðmundur Ágúst er á pari vallar eftir 36 holur. Hann er þegar þetta er skrifað í 77. sæti. Það má búast við því að niðurskurðarlínan verði við parið eða höggi undir pari vallar.


Guðmundur Ágúst hefur á undanförnum tveimur vikum þokað sér upp stigalistann á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki, DP World Tour. Hann endaði í 51. sæti á á Thailand Classic mótinu sem lauk s.l. sunnudag. Í vikunni þar á undan endaði hann í 49. sæti. Hann endaði í 48. sæti á móti sem fram fór á Indlandi.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst leikið á átta mótum á DP World Tour. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á þremur síðustu mótum sem er besti árangur sem íslenskur karlkylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki í Evrópu.

Hann fór upp um 23 sæti á stigalistanum eftir mótið í Taílandi og var í sæti nr. 182 fyrir mótið á Indlandi. Hann hefur nú fengið alls 37.7 stig og er í sæti nr. 169 á stigalistanum.

Alls eru 244 keppendur á stigalistanum og var Guðmundur Ágúst í sæti nr. 205 fyrir þremur vikum.

Á þessu tímabili hefur Guðmundur Ágúst fengið tæplega 23 þúsund Evrur í verðlaunafé eða sem nemur 3,6 milljónum kr.

Besti árangur hjá íslenskum kylfingi á DP World Tour er 11. sætið. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, varð í 11. sæti á Telecom Italia Open sem fram fór í maí árið 2007.

Guðmundur Ágúst er sjöundi keppandinn sem slær draumahöggið á DP World Tour á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ