/

Deildu:

Auglýsing

Það er ólíklegt að frumherjar innan Oddfellowhreyfingarinnar og annað áhugafólk um golf, hafi gert sér grein þeirri umbyltingu á svæðinu í Urriðakotsdölum sem framtíðin bæri með sér og þegar hafist var handa við að velta við steinum, tína grjót og sá í örfoka jökulsorfið holtið árið 1990. Árið 1993 er Golfklúbburinn Oddur stofnaður og sækir um aðild að GSÍ og verður þátttakandi í íþróttahreyfingunni og Urriðavöllurinn verður hans heimavöllur. Stofnfélagar voru sjötíu og fimm flestir félagar í Golfklúbbi Oddfellowa en saga þessar tveggja félaga er samofin síðustu 30 ár.

„Eitt stykki golfvöllur, kemur ekki af himni ofan“ sagði Óskar G Sigurðsson fyrsti formaður klúbbsins. Á upphafsárum hans fóru óteljandi tímar sjálfboðaliða í það eitt að gera svæðið hæft til að þess að iðka þar golf. Golfvellir landsins eru flestir byggðir upp á svæðum sem teldust varla nýtanleg til nokkurra hluta. Það átti einnig við um það svæði sem Urriðavöllur liggur á. Frá þeim tíma hafa mörg handtök verið unnin á svæðinu og hið örfoka holt orðið að blómlegu útivistarsvæði sem nú hýsir rúmlega átjánhundruð félagsmenn og iðar af lífi frá byrjun maí fram í október. Það er of langur listi að telja upp alla þá sem lagt hafa hönd á plógin en síðustu tíu árin hefur orðið eðlisbreyting á félagsstarfinu þar sem starfsmenn klúbbsins sjá orðið að mestu um allar framkvæmdir á meðan félagsmenn skipuleggja leik.

En það er ekki bara vallarsvæðið sem þróast, byggðin hefur þanist út og Urriðavatnsdalir eru ekki lengur langt frá byggð heldur við hlið blómlegs íbúðahverfis Urriðaholts. Þessi gæði sem kylfingar hafa skapað er að verða eftirsótt af öðrum sem stunda annarsskonar útivist. Það verður verkefni næstu ára að samtvinna golfið og aðra útivist svo vallarsvæðið fái að þroskast og þróast. Mikilvægi lýðheilsu er okkur í Oddi hugleikið og að geta stuðlað að því að svæði það sem við hugsum um sé opið öllum, íbúum landsins til heilsueflingar.

Það er venja á afmælisári að líta til baka en þrítugur einstaklingur horfir fram á við og það gerum við einnig. Það er því gleðilegt að á þrjátíu ára afmælisdegi Golfklúbbsins Odds, hilli undir loka samþykkt skipulags, að stækkun svæðisins og enn frekari samþættingu golfs við aðra útvist. Verulegur kraftur hefur verið settur í skipulagt íþróttastarf barna og unglinga enda mikilvægt að kynslóðirnar skemmti sér saman. Það er því áframhaldandi mikil uppbygging á svæðinu í Urriðavatnsdölum, þar sem á næstu árum munu nýjar golfbrautir opna á sama tíma og ný útivistarsvæði fyrir gesti þess allan ársins hring.

Árið 2006 hélt Golfklúbburinn Oddur í fyrsta sinn Íslandsmót í golfi, í aðdraganda þess þurfti að leggja í verulegar framkvæmdir sem er grunnur að aðstöðunni eins og hún er í dag. Nú á þrjátíu ára afmælinu hýsum við á ný Íslandsmót og sama aðstaða getur enn tekið á móti þeim viðburði, þó umfangið hafi vaxið. Félagsmenn okkar munu styðja við framkvæmdina enda því þaulvanir eftir að hafa haldið tvö Evrópumót árin 2016 og 2022. Afmælismót klúbbsins verður haldið á þjóðhátíðardaginn 17. júní ásamt ýmsum viðburðum sem munu raðast niður á starfsárið. Klúbburinn hefur svo skipulagt hópferð á suðlægar slóðir þegar hausti hallar en fyrst munum skemmta okkur vel í sumar.

Til hamingju með afmælið
Kári Sölmundarson
Formaður GO

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ