Auglýsing

Golfklúbbur Mosfellsbæjar heldur Mosóbikarinn dagana 16.-18. júní. Mótið er annað mót tímabilsins á stigamótaröð GSÍ. Alls eru 123 leikmenn skráðir til leiks, 37 konur og 89 karlar.

Rástímar hafa verið birtir og eru þeir hér:

Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi.

Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki. Ef keppendur eru jafnir í neðstu sætum ofan niðurskurðarlínu skulu þeir báðir/allir halda áfram. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ.

Rástímar og ráshópar    

Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl. 22:00 á miðvikudeginum fyrir mót (mögulega fyrr en kylfingar fá tilkynningu þess efnis í Golfboxi). Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út alla dagana frá kl. 8:00

 Þátttökuréttur 

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144.

Þáttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Ef fjöldi skráðra leikmanna fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk, þ.e.a.s. þeir kylfingar sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki. Þó skulu að lágmarki 25% af hámarksfjölda keppenda fá þátttökurétt í hvorum flokki, að teknu tilliti til stærðar ráshópa.  Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Mótsgjald 

Karlaflokkur.           
Hvítir teigar  – 9.000 kr.                                   
Kvennaflokkur.       
Bláir teigar   – 9.000 kr.

Skráning og þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á þriðjudegi fyrir mót, 13. júní 2023. ** Engar undantekningar verða leyfðar eftir að skráningu lýkur.** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun berst eftir að skráningarfresti lýkur.

 Æfingahringur  

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn gegnum afgreidsla@golfmos.is eða í síma 5666999 til að panta rástíma. Æfiingahringir skulu leiknir dagana 12. til 15. júní.

Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald. Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Verðlaun  

​Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.       

1. verðlaun: Gjafakort: 75.000 kr. 

2. verðlaun: Gjafkort: 50.000 kr. 

3. verðlaun: Gjafakort 25.000 kr.                                                     

Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ.   Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra. 

Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 20 mínútum eftir að síðasti ráshópur lýkur leik.       

Dómarar, Sigurður Geirsson, s: 8930766

​                 Davíð Baldur Sigurðsson, s: 6176669

Mótsstjóri: Ágúst Jensson

Mótsstjórn: Ágúst Jensson, Hlín Hlöðversdóttir, Gísli Karel Eggertsson, Kristinn Viðar Sveinbjörnsson.

Keppnisskilmálar.

Skor er fært inn rafrænt af leikmönnum og undirritun rafræn í gegnum golfbox.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ