GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild karla árið 2026 eftir 5-0 sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í úrslitaleik mótsins á Hellu í dag. Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur titilinn, og sá 27. frá upphafi.

GR vann A-riðil með 2,5 stig eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Sveit GM endaði í öðru sæti riðilsins og fylgdi GR í undanúrslitin.

Stöðulisti yfir golfklúbba: 1) Golfklúbbur Reykjavíkur með 3 L, 2 S, 1 J, 0 T; Sub 11.5 og stig 2.5; 2) Golfklúbbur Mosfellsbæjar með 3 L, 2 S, 0 J, 1 T; Sub 8 og stig 2; 3) Golfklúbbur Akureyrar með 3 L, 1 S, 1 J, 1 T; Sub 9.5 og stig 1.5; 4) Golfklúbbur Bolungarvíkur með 3 L, 0 S, 0 J, 3 T; Sub 1 og stig 0.
Riðill GR

Í undanúrslitum mætti GR liði Golfklúbbsins Keilis og vann þar 4–1 sigur. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson unnu fyrri fjórmenninginn 5&3 og Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu þann síðari 2&1. Í tvímenningunum unnu Hákon Örn Magnússon og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sína leiki, en Markús Marelsson sótti eina stig GK.

GKG vann B-riðil með fullt hús stiga, og vann Golfklúbb Mosfellsbæjar 3–2 í undanúrslitum. GR og GKG mættust því annað árið í röð í úrslitaleiknum.

GR tók öll fimm stigin í úrslitaleiknum

GR byrjaði úrslitaleikinn af krafti og vann báða fjórmenningana. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson sigruðu Guðjón Frans Halldórsson og Kristófer Orra Þórðarson 5&4.

Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu gegn Ragnari Má Garðarssyni og Skúla Gunnari Ágústssyni. Leikurinn var jafn eftir sautján holur en GR vann átjándu holuna og þar með leikinn.

Sigurður Bjarki Blumenstein vann Hjalta Kristján Hjaltason 2&1 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson vann Aron Snæ Júlíusson, 1&0. Hákon Örn Magnússon lék gegn Sigurði Arnari Garðarssyni í síðasta leiknum, en úrslit mótsins voru þá þegar ráðin og sigur GR staðfestur. Lokatölur urðu 5–0.

Group of young men in navy polo shirts with medals, posing on a golf course with a trophy and blue sponsor flags behind them.
Sveit GR
A group of young men wearing dark sweaters and medals posing for a photo on a grassy golf course with tall blue sponsor flags in the background.
Sveit GKG

Lið GR á Íslandsmótinu skipuðu:

Jóhann Frank Halldórsson, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson, Arnór Tjörvi Þórsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson, Elvar Már Kristinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Golfklúbburinn Keilir sigraði sveit GM 3.5-1.5 í leiknum um bronsið.

Eleven men in dark polo shirts and caps with medals pose on a golf course, arms around each other, with tall blue sponsor flags in the background and a cloudy sky above.
image00010


Úrslit mótsins voru eftirfarandi:

  1. Golfklúbbur Reykjavíkur (GR)
  2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG)
  3. Golfklúbburinn Keilir (GK)
  4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar (GM)
  5. Golfklúbbur Suðurnesja (GS)
  6. Golfklúbbur Selfoss (GOS)
  7. Golfklúbbur Akureyrar (GA)
  8. Golfklúbbur Bolungarvíkur (GBO) – leika í 2. deild á næsta ári

Hér má sjá öll úrslit mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ