GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir náðu báðar góðum árangri á Ladies Slovak Golf Open mótinu á LET Access mótaröðinni sem fór fram dagana 12.-14. ágúst.

Andrea endaði í fjórða sæti mótsins á fimm höggum yfir pari, en Hulda Clara varð jöfn í fimmta sæti á sex höggum yfir pari. Þetta var síðasta mót mótaraðarinnar fyrir þriggja vikna hlé, en næsta mót hefst þann 10. september.

Andrea lék hringina þrjá á 76, 72 og 73 höggum. Hún fékk sautján pör og einn skolla á lokahringnum og kom í hús á 73 höggum. Andrea lauk leik í fjórða sæti, sem er hennar besti árangur á LET Access mótaröðinni á tímabilinu.

Hulda Clara hóf mótið af krafti og var jöfn í öðru sæti eftir fyrsta hringinn, sem hún lék á 74 höggum. Hún kom inn á 77 höggum á öðrum hringnum en lék sinn besta hring á lokadeginum.

Hulda lék lokahringinn á 71 höggi, einu höggi undir pari, og færði sig upp í fimmta sætið.

Hulda Clara situr nú í fimmta sæti stigalistans og Andrea í því nítjánda. Ragnhildur Kristinsdóttir hefur einnig leikið í átta mótum á mótaröðinni í sumar og er þrettánda á listanum, en efstu sjö í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.

Næsta mót LET Access mótaraðarinnar fer fram í Frakklandi dagana 10.-12. september.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ